Meira í þá spunnið en sýnist: Hetjuskapur og karlmennska Fróða Bagga og Sóma Gamban í Hringadróttinssögu

Authors: Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir 2003-
Cited by: 0

Abstract

Hringadróttinssaga eftir J.R.R. Tolkien býður upp á fjölmargar tegundir hetja. Við kynnumst týnda konunginum Aragorn, vitra læriföðurnum Gandalfi og ekki síst hinum smáu hetjum, Fróða Bagga og Sóma Gamban. Í þessari ritgerð eru hobbitarnir tveir undir smásjánni og eru skoðaðir í ljósi hetjuskaps fyrri alda en þar er lögð áhersla á hetjueinkenni Hómershetjanna, miðaldariddaranna og hermanna fyrri heimsstyrjaldar. Í kjölfar þess er karlmennska þeirra skoðuð út frá fyrrnefndum hetjutegundum auk hugmynda félagsfræðingsins R.W. Connell um fjórar undirtegundir karlmennskunnar. Greiningin beinist að því að skýra hvaða gerð hetja Fróði og Sómi eru og hvernig hetjuskapur þeirra og karlmennska mótar samband þeirra. Jafnframt er fjallað um áhrif þessara atriða á lesanda og samfélag Tolkiens. Þá er rýnt í hvaða karlmennskuhugmyndum þeir samrýmast og hvernig karlmennska þeirra þróast samhliða hetjuskapnum. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvað teljist eiginlegur hetjuskapur í sagnaheimi Tolkiens og hvort sagan eða höfundur geri upp á milli ólíkra birtingarmynda hetjuskapar og karlmennsku.

Fields of Study & Subjects

Themes in Literature Analysis Folklore Mythology and Literature Studies Comics and Graphic Narratives

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis