Vímuefnanotkun eldri einstaklinga sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala - Afturskyggn áhorfsrannsókn

Authors: Anna Elísabet Skovsgaard Jónsdóttir 1994-
Cited by: 0

Abstract

Bakgrunnur: Hlutfall aldraðra í heiminum hækkar og í kjölfarið stendur heilbrigðiskerfið frammi fyrir vaxandi áskorunum, þar sem fjölveikindi, fjöllyfjataka og heimsóknir á bráðamóttöku aukast með árunum. Vímuefnaneysla meðal eldri fullorðinna, sérstaklega áfengis, ópíóíða og bensódíazepína, hefur aukist og er oft ógreind. Vímuefnaneysla eldri einstaklinga sem leita á bráðamóttöku hefur ekki verið rannsökuð á Íslandi. Árið 2017 var innleidd bráðaöldrunar ráðgjöf (BÖR) hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku Landspítala sem kann að hafa haft áhrif á greiningu og meðferð. Markmið: Að skoða (1) algengi og þróun vímuefnatengdra greininga meðal eldri fullorðinna (≥67 ára) sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala; (2) breytingar fyrir og eftir innleiðingu BÖR (3) endurkomur og innlagnarmynstur; og (4) tengsl milli vímuefnatengdra greininga og komuástæðanna (ICPC) byltu og minnistruflana. Aðferðir: Afturskyggn áhorfsrannsókn á 137.485 komum eldri fullorðinna (67+) á bráðamóttöku Landspítala á tímabilinu 1. janúar 2013 - 31. desember 2021. Greiningar tengdar vímuefnum voru skilgreindar með ICD-10 kóðum (F10-F19, T39-T43, T51, T65.2, Z13.3, Z71.4-Z71.6, Z72.0-Z72.2). Lýsandi tölfræði var reiknuð auk kí-kvaðrat prófa og logistic aðhvarfsgreiningu á marktækni sambanda. Niðurstöður: Greiningar tengdar vímuefnum komu fram í 978 heimsóknum (0.71% allra koma), oftar hjá körlum og yngri aldurshópum. Gagnlíkindahlutfall slíkra greininga hækkaði á tímabilinu (OR = 1.02 per ár, p = 0.086). Kyn var sterkur spáþáttur fyrir vímuefnagreiningu þar sem konur höfðu 44% lægra gagnlíkindahlutfall á því að fá vímuefnagreiningu en karlar (OR = 0.56, p < 0.001). Neikvæð fylgni var milli aldurs og líkum á vímuefnagreiningu, með 8% lægra gagnlíkindahlutfall með hverju aldursári (OR = 0.92, p < 0.001). Komuástæður vegna byltna og minnistruflanna tengdust sterklega vímuefnatengdum sjúkdómsgreiningum (byltur: OR 3.51, p < 0.001, minnistruflanir: OR=3.77, p < 0.001). Ályktanir: Vímuefnatengdar greiningar meðal aldraðra voru sjaldgæfar en sýndu væga og breytilega aukningu yfir rannsóknartímabilið. Tíð samhliða tilvik vímuefnatengdra greininga, byltna, minnisraskana og endurkoma undirstrika flókið eðli bráðatilfella meðal aldraðra þar sem vímuefnanotkun gæti haft áhrif. Með efldum skimunum og framtíðarrannsóknum með nákvæmari klínískum og langtímagögnum væri hægt að fá skýrari mynd af raunverulegu umfangi og afleiðingum vímuefnanotkunar meðal aldraðra.

Fields of Study & Subjects

Medical Coding and Health Information Chronic Disease Management Strategies Respiratory and Cough-Related Research

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
EN
Document type
Thesis