Þétting byggðar. Áhrif þess á tengsl borgarbúa við náttúruna

Authors: Gúníta Ivetudóttir Zune 1995-
Cited by: 0

Abstract

Á síðustu árum hefur þétting byggðar orðið eitt af meginmarkmiðum borgarskipulags, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu, þar sem áhersla er lögð á að byggja þéttar innan núverandi borgarmarka. Þessi þróun er gjarnan réttlætt með vísun í sjálfbærni, hagkvæmari innviði og umhverfisvænni samgöngur, en á sama tíma vekur hún upp spurningar um hvað gerist þegar grænum svæðum fækkar og dagleg nánd fólks við náttúruna minnkar. Í þessari ritgerð er sjónum beint að tengslunum milli þéttingar byggðar, upplifunar fólks af borgarlandslagi og andlegrar vellíðunar, með sérstakri áherslu á tilfinningu fyrir stað og mögulegu staðleysi í samtímaborgum. Ritgerðin er fræðileg heimildar samantekt sem byggist á mannfræðilegum hugmyndum um íveru og lifandi landslag, þá sérstaklega kenningum Tim Ingold. Einnig er stuðst við hugmyndir Yi-Fu Tuan um rými og stað, ásamt vangaveltum Edward Relph og Marc Augé um staðleysi. Þessi sjónarhorn eru tengd umhverfissálfræðilegum kenningum um endurreisn athyglinnar og hugmyndum um aðdráttarafl lífsins, auk rannsókna sem sýna að aðgengi að grænum svæðum styður við andlega heilsu, félagsleg tengsl og upplifun fólks af borginni sem merkingarbæru umhverfi. Fjallað er um alþjóðleg dæmi, norrænar borgir og stöðu mála á Íslandi, þar sem þéttingarstefna rekst á sterka hefð fyrir nánum tengslum við náttúruna. Megin niðurstaða ritgerðarinnar er sú að þétting byggðar sem gengur á græn svæði dregur úr líkamlegum, skynrænum og tilfinningalegum tengslum fólks við umhverfið. Þetta getur aukið líkur á streitu, andlegri þreytu og upplifun staðleysis og þannig rýrt bæði vellíðan og staðarkennd. Jafnframt er bent á að þétt og sjálfbær borg krefjist þess að náttúran sé samþætt daglegu lífi, fremur en sett til hliðar sem afmarkað borgarrými.

Fields of Study & Subjects

Rural development and sustainability Urbanization and City Planning Migration Aging and Tourism Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis