Geng Biao og Ísland: Mikilvægi heimsóknar Geng Biaos til Íslands árið 1979 í myndun sambands Lýðveldisins Íslands og Alþýðulýðveldisins Kína

Authors: Karin Sigríður Úlfsdóttir 2002-
Cited by: 0

Abstract

Utanríkisþjónusta er mikilvægur vettvangur fyrir mismunandi ríki til að koma sínum áformum á framfæri, styrkja sambönd sín og efla milliríkjaviðskipti. Ein af opinberustu aðferðum utanríkisþjónustunnar eru heimsóknir. Opinberar heimsóknir sýna ríkjum að tvö ríki standi saman eða að minnsta kosti eigi í góðu sambandi. Árið 1979 kemur Geng Biao til Norðurlandanna í opinbera heimsókn þar heimsækir hann Noreg, Svíþjóð, Finnland og að lokum Ísland. Tilgangur heimsóknar hans til Norðurlandanna var umdeildur þar sem samband Kína og Sovétríkjanna var mikið hitamál. Í júní 1979 endaði Geng Biao Norðurlandareisu sína á Íslandi. Á tíma heimsóknar hans var samband Íslands og Kína enn í uppbyggingu og var á góðri leið, samt var vafi í loftinu um hvort Kínverjunum ættu að vera treyst. Þrátt fyrir það var heimsókn hans hápunktur sambands ríkjanna á 20. öld. Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka framvindu heimsóknarinnar og tilgang. Með því að rannsaka gang heimsóknarinnar er hægt að greina hvað þótti mikilvægt, bæði fyrir Ísland og Kína. Til dæmis má nefna að Geng Biao heimsækir ýmis fyrirtæki en hvaða fyrirtæki hann heimsækir gæti sagt ýmislegt til um hvað kínverska ríkisstjórnin hafði áhuga á hvað varðar Ísland. Á hinn bóginn segja þeir staðir sem íslenska ríkisstjórnin fór með Geng Biao sagt til um sjálfsmynd Íslands. Til dæmis má nefna staði eins og Þingvelli og Bessastaði. Í þessari ritgerð eru færð rök fyrir því að helsti tilgangur heimsóknarinnar hafi verið vegna viðskipta ríkjanna tveggja. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að aukning varð í milliríkjaviðskiptum Íslands og Kína árinu eftir heimsókn Geng Biaos og einnig að tilgangur heimsóknarinnar var mun frekar að efla viðskipti heldur en að sporna gegn frekari áhrifum Sovétríkjanna á Íslandi. Þessar niðurstöður sýna fram á bein tengsl milli heimsóknar Geng Biaos og aukningar á viðskiptum sem ýtir enn frekar undir þann punkt að þessi heimsókn hafi verið lykilatriði í þróun sambandsins.

Fields of Study & Subjects

European Cultural and National Identity European Socioeconomic and Political Studies Historical Geopolitical and Social Dynamics

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis