Eldur allra vatna: Gull og gullskenningar í norrænum goðsögnum og skáldskap

Authors: Þórður Viðar Snæbjörnsson 1961-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um dróttkvæði sem er flokkur norræns kveðskapar á miðöldum og einkenni þeirra athuguð. Dróttkvæðaskáldin notuðu sérstakt skáldamál, heiti sem eru skáldleg orð og kenningar sem eru samsetning tveggja nafnorðsliða. Fagurfræði dróttkvæðanna var ólík klassískri fagurfræði og einkenndist af andstæðuspennu, tvísæi og streitu. Uppruni þessa skáldskapar tengdist goðsögnum. Til eru nokkrar goðsögur sem lýsa viskuleit Óðins, ein er í Rúnatali Hávamála þar sem því er lýst þegar Óðinn hékk á trénu níu nætur til þess að öðlast visku. Að lokum fær hann að drekka af miði og verður frjór og fróður. Mjöður eða drykkur sem hefur sérstakan kraft er oft nefndur í kvæðum og goðsögnum og tengist jötnum sem ráða í upphafi yfir miðinum í þessum gömlu sögum. Gull er í kenningum „eldur allra vatna“ og ritgerðinni er fjallað um kenningar og eiginleika þeirra og hvernig gullskenningar tengjast hafi og vatni.

Fields of Study & Subjects

Therapeutic Uses of Natural Elements Music Therapy and Health Social and Cultural Dynamics

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis