Og kraftaverkið varð: 12 konur eftir Svövu Jakobsdóttur í þýðingu milli lítilla tungumála

Authors: Vera Pétursdóttir 1993-
Cited by: 0

Abstract

Verkefnið samanstendur af hollenskri þýðingu á sjö smásögum úr smásagnasafninu 12 konur (1965) eftir Svövu Jakobsdóttur og greinargerð um frumtextann, þýðingarferlið og viðkomandi fræðiefni. Þegar þýtt er á milli lítilla tungumála svo sem íslensku og, að vissu leyti, hollensku verður þýðandinn að fást við skort á hjálpargögnum svo sem tvímálaorðabókum. En slík hjálpargögn geta verið nauðsynleg þegar um er að ræða flókinn marktexta eins og bókmenntaverk Svövu, sérstaklega þegar þýðandinn skilur ekki fullkomlega frummálið eins og í mínu tilfelli. Marktexti þessarar greinargerðar samanstendur af sjö smásögum sem segja frá reynslu og sjónarhorni kvenna á afdrifaríku tímabili í sögu Íslands og eru blæbrigðaríkar og margslungnar. Þær einkennast af sálrænni dýpt, kaldhæðni og notkun myndmáls og þarfnast því afar nákvæmrar þýðingar. Í greinargerðinni er skoðað hvernig þýðandinn getur þýtt flókinn texta með þeim takmörkuðu hjálpargögnum sem fáanleg eru. Þar sem íslensk-hollensk orðabók sem er nógu nákvæm og ítarleg fyrir bókmenntaþýðingar er ekki enn þá til þurfti ég að nota „millimálsorðabækur“ svo sem íslensk-enskar og ensk-hollenskar. Í slíkum óbeinum aðferðum er hins vegar meiri hætta á þýðingarvillum. Þýðandinn verður þá að tileinka sér nýjar aðferðir til að tryggja góða þýðingu.

Fields of Study & Subjects

Linguistic Variation and Morphology Historical Linguistics and Language Studies Linguistic research and analysis

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis