„Hvorugt er rangt og hvorugt er réttara en hitt“: Um kynhlutlaust mál á RÚV

Authors: Sólveig Klara Ragnarsdóttir 1991-
Cited by: 0

Abstract

Kynhlutlaust mál og notkun þess á RÚV er umfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Fjallað verður um beygingarformdeildina kyn og umræðu fræðimanna og almennings um kynhlutlaust mál. Sú umræða hefur aukist síðustu ár og sífellt fleiri tileinka sér þessa nýjung í máli. Hennar hefur meðal annars gætt hjá starfsfólki RÚV og hefur það sætt töluverðri gagnrýni. Almenningur hefur miklar skoðanir á málfari á RÚV en misskilnings gætir iðulega um þær ákvarðanir sem þar eru teknar sem lúta að málfari. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna hvort RÚV ræki skyldur sínar gagnvart íslenskunni með því að leyfa starfsfólki að notast við þennan breytileika í máli, eða ekki. Málstefna RÚV hefur tekið breytingum, þar sem hreintungustefna og forskriftarmálfræði hefur vikið fyrir auknu umburðarlyndi. Málstefnan tekur nú mið af jafnréttissjónarmiðum sem þarf að hafa í huga þegar ákvarðanir er varða tungumálið eru teknar. Þannig hefur skapast rými fyrir allskonar íslensku á RÚV. Íslensku innflytjenda, íslensku ungs fólks og íslensku þeirra sem tala tungu sem stundum stríðir gegn viðtekinni venju. Hlutverk RÚV er, samkvæmt málstefnu Ríkisútvarpsins, að leggja rækt við íslenska tungu og gera málið hæfara til að þjóna hlutverki sínu í samfélaginu. Eigi RÚV að rækja það hlutverk og gæta jafnréttissjónarmiða er stefnuleysi í stað skýrrar stefnu um kynhlutlaust mál mögulega farsælasta lausnin. Tungumál eru lifandi og taka breytingum og skýr afstaða með eða gegn kynhlutleysi í máli breytir seint þeirri þróun.

Fields of Study & Subjects

Social Policy and Reform Studies Youth Education and Societal Dynamics European Union Policy and Governance

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis