Goðamyrkvun: Hvernig maður stundar heimspeki með hamrinum

Authors: Geir Aðalsteinsson 2000-
Cited by: 0

Abstract

Í þessu verkefni legg ég fram þýðingu mína á fyrstu köflum Goðamyrkvunar (1889) eftir heimspekinginn Friedrich Nietzsche (1844-1900). Eðli málsins samkvæmt eru þýðingar þó alltaf huglægar að vissu leyti og því stendur þýðandi frammi fyrir því að velja oft eitt orð fram yfir annað, ef um er að ræða t.d. samheiti þar sem er blæbrigðamunur. Ég færi því rök fyrir ákveðnum orðum sem notuð voru framyfir önnur í hlutanum sem fylgir eftir ritgerðinni áður en kemur að þýðingunni sjálfri. Inngangi mínum að þessu þýðingarverkefni er skipt í þrjá hluta þar sem ég fer í fyrsta lagi yfir heimspekilegt innihald þýddra kafla, fjalla í öðru lagi um túlkun Martin Heidegger (1889-1976) á frumspeki Nietzsches með hliðsjón af innihaldi fyrstu kafla Goðamyrkvunnar í víðara samhengi heimspeki Nietzsche. Ég geri í þriðja lagi grein fyrir túlkun Heideggers á sannleikskenningu Nietzsche og útskýri afhverju Heidegger vill meina að Nietzsche ljúki vestrænni frumspeki frekar en að hafna henni, eins og viðteknar túlkanir þess tíma gerðu ráð fyrir.

Fields of Study & Subjects

Nietzsche Schopenhauer and Hegel Education Literature Philosophy Research Kierkegaardian Philosophy and Influence

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis