Dýrakróníkan: Greinargerð um verk í vinnslu

Authors: Áslaug Ýr Hjartardóttir 1996-
Cited by: 0

Abstract

Á sama tíma og fjölmiðlar fjalla um læsi ungmenna og taka viðtöl við stjórnmálamenn og sérfræðinga sem lýsa yfir áhyggjum af stöðu mála, vann undirrituð að gerð meistaraverkefnis í ritlist. Markmiðið var að skapa skemmtilegan bókaflokk fyrir börn sem væru byrjuð að lesa, þar sem frásögnin væri hvorki of löng né flókin. Höfundur sótti innblástur til eigin bernsku auk fyrra náms, einkum og sér í lagi til bókmenntafræðinnar, og gerði tilraun til að skapa fantasíu með undirliggjandi hrollvekjueinkennum, án þess þó að taka of djúpt í hryllingsárina. Útkoman var bókaserían Dýrakróníkan, þar sem fyrstu tvær bækurnar fjalla um köttinn Kalla annars vegar og Klósettúlfinn ógurlega hins vegar. Í þessari greinargerð verður farið yfir ritunarferlið, greint frá hugmyndum og verkfærum höfundar, persónur bókanna settar fram og söguþráðurinn reifaður. Höfundur vonast til að verkið verði að lokum gefið út og að ungir lesendur fái notið þess. Enda ekkert leyndarmál að þörf er á meira og fjölbreyttara lesefni fyrir þennan lesendahóp á íslensku.

Fields of Study & Subjects

Educational Theory and Curriculum Studies Literacy Media and Education Educational and Psychological Assessments

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis