Lifandi borgarumhverfi: frá gráum minimalisma til leikandi borgarrýmis - söguleg þróun, fræðileg gagnrýni og nýjar leiðir í borgarhönnun
Abstract
Greining á borgarlandslagi 20. aldar afhjúpar viðvarandi spennu á milli hugmynda um hagkvæmni og einfaldleika annars vegar og raunverulegrar upplifunar íbúanna hinsvegar. Í þessari ritgerð verður rakið hvernig hugmyndir módernismans um einfaldleika, hagkvæmni og skynjun hafa átt sinn þátt í að móta borgarlandslag 20. aldar. Og hvaða fræðilegu rök styðja við samtímabreytingu í átt að litríkari, líflegri og manneskjumiðaðri endurhönnun almenningsrýma? Greiningin skiptist í þrjá meginhluta til að varpa ljósi á þessa þróun. Í fyrsta lagi verða kannaðar þær hugmyndafræðilegu og fagurfræðilegu rætur sem lágu til grundvallar naumhyggju 20. aldarinnar í arkitektúr og borgarskipulagi. Í öðru lagi verður sú nálgun tekin til gagnrýninnar skoðunar út frá sjónarhorni fyrirbærafræði, sálfræði og félagsfræði, þar sem áhersla er lögð á upplifun íbúans. Í þriðja lagi verða lögð fram fræðileg og hagnýt rök fyrir litríkri og leikandi borgarhönnun sem hefur það að markmiði að efla vellíðan og félagslegan styrk meðal íbúa. Grundvallarkenning þessa rits er sú að hreyfingin frá naumhyggjukenndri óhlutstæðni í átt að ríkulegu, skynrænu og leikandi borgarumhverfi sé ekki einungis stílbreyting. Heldur sé hún nauðsynleg þróun sem byggir á dýpri skilningi á mannlegri skynjun, félagslegu gangverki (e. social structure) og almennri lýðheilsu.
Fields of Study & Subjects
Architecture
Modernity
and Design
Architecture and Cultural Influences
Collaborative and Sustainable Housing Initiatives
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis