Hvar eiga börnin að vera? Nýja kvennahreyfingin og umræðan um dagvistun barna á áttunda áratug 20. aldar.

Authors: Sara Margrét Ragnarsdóttir 1991-
Cited by: 0

Abstract

Þegar líða tók á síðari helming 20. aldar fóru konur á Íslandi í vaxandi mæli út á vinnumarkaðinn og þær urðu líka sífellt stærri hluti brautskráðra stúdenta. Nýjar kynslóðir kvenna, dætur eftirstríðsáranna, sáu fyrir sér fjölbreyttari framtíðarmöguleika en mæður þeirra og ömmur höfðu haft. Þessar miklu og hröðu samfélagslegu breytingar sköpuðu íslenskum fjölskyldum aðkallandi vanda sem bregðast varð við. Dagheimili og leikskólar voru af skornum skammti og náðu engan vegin að mæta vaxandi þörf foreldra. Dagvistunarmálin urðu mikið hitamál á áttunda áratugnum og ákallið eftir úrbótum í málaflokknum var hávært. Nýja kvennahreyfingin nam land í upphafi áratugarins og róttæk feminísk orðræða hennar kom róti á umræðuna um dagvistunarstofnanir. Innan kvennahreyfingarinnar á Íslandi á áttunda áratugnum, skiptist umræðan um dagvistunarstofnanir í tvær megin orðræður. Annars vegar róttæka feminíska orðræðu nýju kvennahreyfingarinnar og hins vegar orðræðu hægfara kvenréttindahugsjónar hinnar hefðbundnu kvennahreyfingar. Hér er orðræða kvennahreyfingarinnar um dagvistunarmálin krufin. Kannað er hvort og hvernig orðræða nýju kvennahreyfingarinnar tókst á við eldri og íhaldsamari viðhorf og hvernig hún hreyfði smám saman nálina frá umræðu um það hvort dagvistunarúrræði ættu yfir höfuð rétt á sér yfir í það hvernig dagvistunarúrræðin ættu að vera. Einnig er sjónum beint að því hvort hugmyndir nýju kvennahreyfingarinnar um dagvistun hafi haft áhrif á opinbera stefnumótun.

Fields of Study & Subjects

Oral History Memory Narrative Analysis Historical Studies on Reproduction Gender Health and Societal Changes Historical Psychiatry and Medical Practices

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis