Nauðgunarmenning þrífst í þögninni
Abstract
Þessi ritgerð fjallar um nauðgunarmýtur og þolendaskömm sem eiga sinn þátt í að viðhalda nauðgunarmenningu. Markmið ritgerðarinnar er að greina slíkar hugmyndir og það félagslega samhengi sem gerir kynferðisofbeldi mögulegt, réttlætanlegt og að mörgu leyti ósýnilegt, sem og að draga fram hvernig ólíkir þættir fléttast saman á kerfisbundinn hátt. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: Hvernig stuðla nauðgunarmýtur og þolendaskömm að viðhaldi nauðgunarmenningar? Leitað er í kenningar um kynjakerfið, ráðandi karlmennsku, styðjandi kvenleika og valdakerfi til þess að varpa ljósi á hvernig hugmyndir um „alvöru nauðgun“, „rétta“ hegðun þolenda og félagslega ábyrgð, sem sett er á konur, endurskapa ríkjandi valdatengsl. Byggt er á rannsóknum sem sýna hvernig þolendaskömm birtist í orðræðu, viðhorfum, fjölmiðlum og réttarkerfinu, og hvernig incel-hreyfingin og kvenfyrirlitning á stafrænum vettvangi endurspegla og styrkja sömu undirliggjandi hugmyndafræði. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna fram á að nauðgunarmýtur og þolendaskömm eru ekki tilviljanakenndar eða jaðarsettar hugmyndir, heldur virkar hugmyndir í samtímanum sem setja kynferðisofbeldi fram sem eitthvað sem er eðlilegt. Þær hafa áhrif á það hvort brotaþolar treysta sér til þess að tilkynna brotið, hvernig samfélagið túlkar frásagnir þeirra og hvernig réttarkerfið bregst við. Lögð er áhersla á að til þess að vinna gegn nauðgunarmenningu þurfi að vinna gegn þessum hugmyndum á öllum sviðum samfélagsins, ásamt því að styrkja gagnrýna umræðu um kyn, vald og menningarleg norm.
Fields of Study & Subjects
Crime
Deviance
and Social Control
Social Power and Status Dynamics
Health
psychology
and well-being
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis