Publication Errors in the Official Journal of Iceland and their Rectification

Authors: Svavar Kjarrval 1983-
Cited by: 0

Abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar er mistök við birtingu réttarreglna í Stjórnartíðindum. Ætlunin var að bæta úr þeim umfjöllunarskorti sem gætt hefur í fræðaskrifum um þetta efni. Efnið er rætt út frá 27. gr. stjórnarskrárinnar er kveður á um að lög skuli birta, og byggist á réttaröryggi og nauðsyn birtingar gagnvart almenningi. Rannsóknin byggist aðallega á frumrannsóknum ritgerðarhöfundar er fólust í því að fletta í gegnum prentútgáfu Stjórnartíðinda frá 1874 til nóvember 2005, skrá allar leiðréttingar sem komu þar fram, og tengdar upplýsingar. Þá leitaði ritgerðarhöfundur eftir upplýsingum um mistök með ýmsum öðrum hætti, og fann þannig villur sem ekki er vitað til þess að hafi enn verið leiðréttar. Meginframlagið í ritgerðinni felst í þessari frumrannsókn og yfirferð. Niðurstöður ritgerðarinnar um áhrif og gildi annmarka og mistaka við birtingu í Stjórnar­tíðindum eru fjölbreyttar en þær byggja á nokkrum lykilsjónarmiðum: a) að ríkið beri ábyrgð á (réttri) birtingu og megi því ekki hagnast á eigin mistökum, og b) að borgarar geti byggt á ýmist réttaröryggi eða réttmætum væntingum um að textinn sem birtist í Stjórnartíðindum teljist réttur þar til annað kemur fram. Þetta var álitið skipta sérstöku máli á strangari réttar­sviðum eins og skattarétti og refsirétti. Á þessum lykilsjónarmiðum eru fræðilegar, en þó ekki alltaf algildar, undantekningar er felast í því að þetta eigi ekki við þegar um svokallaðar sjálfvirkar leiðréttingar (alveg augljós­ar villur) er að ræða og ef viðkomandi er álitinn vera í slæmri trú um mistökin. Þrátt fyrir að rannsóknin sýni fram á að mistök hafi sannarlega orðið við birtingu réttar­reglna í Stjórnartíðindum þá eru tiltölulega fá dæmi úr réttarframkvæmd um að reynt hafi á áhrif eða þýðingu slíkra mistaka. Hluti af greiningu höfundar á afleiðingum mistaka byggist því á almennum ályktunum um mistök sem gætu mögulega orðið og almennum ályktunum um möguleg réttaráhrif. Í ritgerðinni var rætt um ýmis snið leiðréttinga á mistökum í Stjórnartíðindum og réttar­áhrif þeirra. Komist var að þeirri niðurstöðu að heimilt væri og skylt að leiðrétta mistök í Stjórnartíðindum, en þó væri einhver vafi um sumar tegundir leiðréttinga. Að því marki sem leiðrétting hefur réttaráhrif var ályktað að þær hefðu almennt sömu réttaráhrif og lagaskil, er gerir mat á réttaráhrifum atviksbundið. Í lokin eru ræddar ýmsar tillögur um mögulegar úrbætur sem hægt væri að gera til að sporna gegn mistökum á tækniöld en jafnhliða eru gerðar tillögur um úrbætur á leiðréttingar­ferlinu, þar á meðal að íhuga lengri gildistökufrest eftir birtingu svo hægt sé að staðreyna rétta birtingu áður en auglýsing öðlast gildi.

Fields of Study & Subjects

European Socioeconomic and Political Studies Political Science Research and Education Political and Social Issues

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis