Minnisfærni barna með málþroskaraskanir: Athugun á kenningu Ullmans um skert aðgerðaminni sem orsök DLD

Authors: Teresa Nukun Steingrímsdóttir 2003-
Cited by: 0

Abstract

Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til BA-prófs í almennum málvísindum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Í henni er málþroskaröskun DLD (e. Developmental Language Disorder) til umfjöllunar út frá kenningu um skert aðgerðaminni sem orsök röskunarinnar: the Procedural Deficit Hypothesis (PDH). Kenningin, sem kennd er við Michael T. Ullman, er tilraun til þess að brúa gjána á milli heila og hugrænnar starfsemi í röskuninni. Í henni felst sú hugmynd að undirliggjandi skerðing í aðgerðaminni gæti mögulega útskýrt þá erfiðleika sem einkenna DLD. Hún fjallar sérstaklega um hlutverk þekkingarminnis og aðgerðaminnis með því að tengja þessar tegundir minnis við orðaforða annars vegar og málkerfi hins vegar, en í því samhengi eru erfiðleikar barna með DLD við að tileinka sér málfræðileg atriði helst til áherslu. Lögð er áhersla á að skýra hlut aðgerðaminnis í málþroskaröskun og voru rannsóknarspurningarnar því eftirfarandi: (a) Liggja orsakir málþroskaröskunar fyrst og fremst í erfiðleikum á sviði aðgerðaminnis? (b) Geta fleiri hugrænir þættir en aðgerðaminni sagt okkur eitthvað um birtingarmyndir málþroskaröskunar DLD? Til er fjöldi kenninga um málþroskaröskun DLD en þessi tiltekna kenning um aðgerðaminnið og málþroska hefur verið áhrifamikil þó hún sé enn umdeild. Hluti af gagnrýninni á kenninguna snýst um að hún sé of enskumiðuð og að það komi í ljós þegar henni er beitt í öðrum tungumálum. Þess vegna taka niðurstöðurnar hér mið af þess háttar gagnrýni og snert er á öðrum hugrænum ferlum en aðgerðaminni, ásamt því sem önnur tungumál en enska eru athuguð. Á heildina litið gefa niðurstöður til kynna að enn sé mörgum spurningum ósvarað innan kenningarinnar og þeirra fræða sem snúast um tengsl málþroskaröskunar DLD við önnur svið hugrænnar færni.

Fields of Study & Subjects

Language Development and Disorders Stuttering Research and Treatment Williams Syndrome Research

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis