Í manna minni - greining á seljabúskap út frá Jarðabókum Árna Magnússonar og Páls Vídalíns
Abstract
Rannsóknin byggir á Jarðabókum Árna Magnússonar og Páls Vídalín og verkefni þeirra sem unnin var á árunum 1702–1714. Markmið þeirra var að skrá stöðu jarða á Íslandi með aðstoð heimamanna og taka saman umfang þeirra eigna. Jarðabækurnar ná yfir flestar sýslur landsins nema þrjár. Fyrir hverja jörð voru skráðar upplýsingar um eignarhald jarðanna, fjöldi búpenings og aðrar viðkomandi upplýsingar samkvæmt verklagi Árna og Páls. Tekin voru saman öll tilvik þar sem sel vorru nefnd sem sett var saman í gagnagrunn. Tilvikum voru flokkuð eftir virkni selja og staðsetningu þeirra. Jafnframt voru nýttar aðrar heimildir til að styðja við greiningna, meðal annars upplýsingar um búpening, stærð jarðana og eignarhald. Magn upplýsinga var mismunandi og gátu lýsingar úr Jarðabókunum verið allt frá stakri setningu um sel á jörð upp í ítarlegar lýsingar. Með því að rýna í og flokka upplýsingar var unnt að meta stöðu og umfang seljabúskaps á 18. öld. Samhliða voru útbúin kort með staðsetningum lögbýla þar sem sel var nefnt, hvort sem lýsingin kæmi fram hjá hjáleigu, lögbýlisparti eða jarðirnar sjálfrar. Sel voru nefnd í lýsingum 661 jarða af 3580 eða í 18% tilvika. Til þess að fá heildarmynd af þeim jörðum sem nefndu sel, hvort sem þau voru virk eða óvirk. Þá voru tekin saman ákveðin atriði sem mögulega gætu gefið skýra mynd af seljabúskap og hvernig hann kom fram í skráningu Jarðabókanna. Þau atriði voru tímasetningar skráninga, hver eða hverjir voru skráningaraðilar, fjöldi mjólkandi búpenings, staðsetning seljanna og ástæða/ur af hverju sum sel væru óvirk.
Fields of Study & Subjects
Historical Studies of British Isles
Historical and Archaeological Studies
Migration
Policy
and Dickens Studies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis