„Ef ég skyldi slasast erlendis myndi ég vilja að það væri vel tekið á móti mér“ Upplifun hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku af því að hjúkra erlendum ferðamönnum
Abstract
Bakgrunnur: Alþjóðleg ferðamennska hefur aukist verulega á undanförnum árum og hefur þessi þróun haft áhrif á íslenskt heilbrigðiskerfi, einkum bráðamóttökur. Erlendir ferðamenn sem leita sér heilbrigðisþjónustu er fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir, væntingar og menningarlegan bakgrunn sem getur skapað áskoranir í hjúkrun þessa hóps. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum af því að annast erlenda ferðamenn og greina þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir. Aðferð: Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðafræði með þremur rýnihópaviðtölum við samtals 13 hjúkrunarfræðinga af þremur bráðamóttökum innan og utan Reykjavíkur. Gögn voru greind með þemagreiningu samkvæmt sex stigum Braun og Clarke. Niðurstöður: Fjögur megin þemu komu í ljós, (1) samskiptaörðugleikar, (2) menningarmunur, (3) fjölþætt hlutverk hjúkrunarfræðinga og (4) tilfinninga- og siðferðilegar áskoranir. Tungumálaörðugleikar reyndust vera ein helsta áskorunin og höfðu áhrif á klínískt mat, ákvarðanatöku og öryggi sjúklinga. Menningarmunur og ólíkar væntingar til heilbrigðisþjónustunnar gátu leitt til vantrausts, misskilnings og aukins álags. Jafnframt lýstu þátttakendur því að þeir sinntu fjölmörgum verkefnum sem jók tímaþröng og tilfinningalegt álag Ályktun: Niðurstöður sýndu að hjúkrun erlendra ferðamanna á bráðamóttöku var tímafrek og flókin. Til að tryggja öryggi og gæði þjónustu þyrfti að bæta aðgengi að túlkaþjónustu, styrkja fræðslu í menningarnæmi og skýra verkferla. Slíkar aðgerðir geta stuðlað að auknu öryggi sjúklinga, bættri starfsánægju hjúkrunarfræðinga og heildstæðari bráðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn.
Fields of Study & Subjects
Complementary and Alternative Medicine Studies
Enhanced Recovery After Surgery
Cultural Competency in Health Care
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis