Er markmálið notað í kennslu íslensku sem annars máls?

Authors: Luísa Buonfino 1990-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um það hvort markmálið eða móðurmál nemenda sé notað í kennslu íslensku sem annars máls í málaskólum á Íslandi. Nú á dögum bjóða málaskólar upp á íslenskunámskeið fyrir fullorðna nemendur sem deila sama móðurmáli. Notkun móðurmáls nemenda í annarsmálskennslu er umdeilt umræðuefni á sviði annarsmálsfræða þar sem fræðimenn eru ekki sammála um það hvort betra sé að styðjast við móðurmál nemenda eða markmálið í annarsmálskennslu. Til að kanna hvaða kennslumál er aðallega notað í kennslu íslensku sem annars máls var gerð könnun sem send var í helstu málaskóla á höfuðborgarsvæðinu. Markmið könnunarinnar var að varpa ljósi á hvaða kennslumál er notað í kennslunni og einnig viðhorf kennara til þess hvort betra sé að nota markmálið eða móðurmál nemenda í íslenskukennslu.

Fields of Study & Subjects

Hearing Impairment and Communication Educational Theory and Curriculum Studies EFL/ESL Teaching and Learning

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis