Áhrif MeToo á niðurstöður ærumeiðingamála. Beiting sjónarmiðsins um góða trú í tilviki staðhæfinga um kynferðisofbeldi í skjóli MeToo
Abstract
MeToo hreyfingin markaði djúp spor í íslensku samfélagi þar sem þúsundir frásagna af kynferðisofbeldi streymdu fram á samfélagsmiðlum frá íslenskum konum úr öllum stéttum. Markmið hreyfingarinnar var að uppræta langvarandi þöggun og misrétti af hendi hins dæmigerða refsivörslukerfis með því að nafngreina og ásaka meinta gerendur opinberlega án dóms né laga. Afleiðingar þess voru fjöldi ærumeiðingarmála sem skapaði umfangsmikla dómaframkvæmd á þessu sviði. Þróunin varð sú að íslenskir dómstólar fóru í auknum mæli að leggja til grundvallar sjónarmið sem Mannréttindadómstóll Evrópu hafði lagt til grundvallar í dómaframkvæmd sinni. Kjarni niðurstöðu í slíkum ærumeiðingarmálum er að finna hæfilegt jafnvægi á milli tjáningarfrelsis þolenda kynferðisofbeldis og friðhelgi einkalífs ásakaðra manna. Ritgerð þessi fjallar um beitingu sjónarmiðsins um góða trú í tilviki staðhæfinga um kynferðisofbeldi í skjóli MeToo en sú framkvæmd er fyrirferðamest í framangreindum ærumeiðingarmálum. Markmið ritgerðarinnar er að setja fram vísireglur sem skýra eða styrkja dómaframkvæmd íslenskra dómstóla í MeToo ærumeiðingarmálum með því að sætta annars vegar markmið og tilgang MeToo og einkalífsvernd ásakaðra manna. Vísireglurnar eru útfærsla á ríkjandi sjónarmiðum í ærumeiðingarmálum að íslenskum rétti sem hafa þann tilgang að draga fram helstu forsendur og áhrifaþætti sem skipt geta máli við niðurstöðu um hæfilegt jafnvægi á milli tjáningarfrelsis þolenda og einkalífsvernd meintra gerenda. Ritgerð þessi er sjálfstætt framlag til fræðilegrar umfjöllunar á sviði ærumeiðingarréttar og hefur að því leyti bæði snertiflöt við félagsvísindi og hugvísindi. Í þessari ritgerð er því hugtakið æra skilgreint út frá afstæðu eðli þess sem grundvöllur fyrir síðari umfjöllun. Því næst er fjallað um gildandi ærumeiðingarrétt með áherslu á ríkjandi þau sjónarmið sem íslenskir dómstólar beita til að komast að niðurstöðu í ærumeiðingarmálum með hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Í framhaldi af því er fjallað um markmið, tilgang, aðferðarfræði og megineinkenni MeToo. Að því loknu eru vísireglurnar settar fram á grundvelli framangreindrar umfjöllunar. Loks eru vísireglurnar mátaðar við dómaframkvæmd í MeToo ærumeiðingarmálum. Að lokum eru helstu niðurstöður ritgerðarinnar dregnar saman og færð rök fyrir gildi og nýbreytni vísireglanna.
Fields of Study & Subjects
Criminal Justice and Corrections Analysis
Legal Education and Practice Innovations
Psychopathy
Forensic Psychiatry
Sexual Offending
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis