Að byggja brú: Menningarleg áhrif Ottómanveldisins í Serbíu.

Authors: Teodora Dragojlovic 2002-
Cited by: 0

Abstract

Í ritgerðinni verður fjallað um menningarleg áhrif Ottómanveldisins í Serbíu. Gerð verður grein fyrir þeim áhrifum sem eru enn sýnileg í daglegu lífi Serba og einnig ýmsum áhrifum sem nú eru horfin. Fjallað verður um áhrif Ottómana á serbneska tungumálið, til dæmis hvernig ottómönsk tökuorð birtast í málinu, hversu mörg þau eru og hvaða orð eru ennþá í notkun. Aðalefni ritgerðarinnar er byggingarlist en þá verður einnig minnst á orð tengd byggingum. Ottómanar reistu margar moskur í Serbíu, sem voru flestar byggðar í klassískum ottómönskum stíl. Margar voru reistar í Belgrad. Borgin tók að þróast í austrænan héraðsbæ við komu Ottómana á 16. öld, en eina moskan sem stendur þar í dag er Bajrakli moskan. Ritgerðin tekur hana sérstaklega fyrir og einkum er fjallað um Mehmed Paša Sokolović brúna en bæði mannvirkin voru byggð á 16. öld. Þau verða svo settar í víðara sögulegt samhengi. Einnig verður fjallað um eyðileggingu moskna og annarra ottómanskra bygginga í Serbíu. Þannig verða menningarleg áhrif einnig skoðuð út frá þjóðmenningu og hvernig byggingar leika hlutverk í myndun þjóðernissjálfsmynda. Markmiðið er að gera grein fyrir áhrifum Ottómanveldisins í Serbíu og tengslum þeirra við serbneska þjóðernishyggju og einnig að gera tilraun til að skoða af hverju sum áhrif hafa fengið að vera hluti af serbneskri menningu en önnur ekki.

Fields of Study & Subjects

Balkans: History Politics Society Balkan and Eastern European Studies Central European national history

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis