"Fleiri minionsar": Um fleirtölumyndun íslenskra leikskólabarna af enskum tökuorðum
Abstract
Tækninýjungar og alþjóðavæðing síðastliðins áratugs eða svo hefur haft í för með sér málbreytingar í íslensku. Enska hefur óneitanlega orðið alþjóðamál vestræns heims þar sem hún býr yfir stórum hluta þess orðaforða sem notaður er víða á mörgum sviðum tækninnar. Fjölmörg tungumál heimsins eru því í svokölluðu stafrænu málsambýli við ensku sem leiðir af sér aukna enskunotkun og þar er íslenska ekki undanskilin. Tökuorð úr ensku hafa til að mynda aukist í málnotkun íslenskra málhafa. Þessar breytingar hafa orðið til þess að rannsóknir á málsambýli íslensku og ensku færast sífellt í aukana og urðu kveikjan að viðamiklu öndvegisverkefni sem ber heitið Greining á málfræðilegum afleiðingum stafræns málsambýlis og fór fram á árunum 2016–2019. Verkefnastjórar þess voru Sigríður Sigurjónsdóttir og Eiríkur Rögnvaldsson. Hluti af verkefninu fól í sér að kanna fleirtölumyndun íslenskra barna á enskum tökuorðum en sá hluti er fyrirmynd könnunar sem gerð var fyrir þessa ritgerð haustið 2025. Í þessari ritgerð er fjallað um framkvæmd og niðurstöður þessarar könnunar og hún borin saman við sambærilegar fleirtölurannsóknir. Af þeim niðurstöðum sem fékkst má ætla að fleirtölumyndun íslenskra barna af enskum tökuorðum í íslensku hafi tekið nokkrum breytingum á síðustu árum. Niðurstöður sambærilegrar könnunar sem gerð var árið 2021 leiddi í ljós að þá var hlutfall íslenskrar fleirtöluendingar af enskum tökuorðum í íslensku 46,5% og niðurstöður könnunar minnar sýna að íslenskar fleirtöluendingar einkenni enn stóran hluta fleirtölumyndanna þeirra, eða 31%. Enn fremur má sjá á samanburði þessara tveggja kannana að ensk fleirtöluending á tökuorðunum hefur ekki orðið algengari fyrir vikið og ekki hefur heldur orðið mikil aukning í enskri fleirtölumyndun á tökuorðum síðustu fjögur árin.
Fields of Study & Subjects
Theatre and Performance Studies
Creative Drama in Education
Transactional Analysis in Psychotherapy
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis