Guðrún Ósvífursdóttir in Laxdæla saga: Character, Power, and Religious Transformation
Abstract
Í þessari ritgerð er fjallað um Guðrúnu Ósvífursdóttur í Laxdæla sögu og þær fjölþættu breytingar sem verða á persónu hennar í sögunni. Guðrún er ein flóknasta kvenpersóna sögunnar og þróun hennar endurspeglar breytingar á samfélagslegum og trúarlegum viðhorfum á þjóðveldisöld. Hún er í upphafi mótuð af heiðnum hugmyndum um heiður, ástríðu og hefnd, en síðar, eftir lífsreynslu og áföll, verða kristin gildi á borð við iðrun, synd, sekt, ábyrgð og innri sjálfsskoðun sífellt veigameiri í lífi hennar. Í ritgerðinni er beitt textagreiningu á Laxdæla sögu með sérstakri áherslu á drauma Guðrúnar, ástarsambönd hennar og þátttöku í blóðhefndum. Staða kvenna á þjóðveldisöld er skoðuð sem mikilvægt samhengi fyrir valkosti og aðstæður Guðrúnar. Þessi bakgrunnur er nýttur til að greina hvernig Guðrún nýtir þau úrræði sem henni standa til boða, meðal annars orðræðu, hjúskap, skilnað og hvatningu til hefnda. Þá er gerður samanburður við Brynhildi Buðladóttur í Völsunga sögu til að skoða hvernig hugmyndir um kvenlegt vald, örlög og hefnd birtast í ólíkum sagnahefðum. Sérstaklega er litið til þess hvernig báðar konur tengjast ástarsvikum og baráttu um heiður, en bregðast þó við með ólíkum hætti – Brynhildur innan síns goðsagnakennda hetjuheims og Guðrún í frásögn sem er mótuð af félagslegum veruleika. Að lokum er kristnitakan á Íslandi skoðuð sem menningarlegur bakgrunnur þeirra trúarlegu umbreytinga sem Guðrún tekur á síðari hluta ævi sinnar. Sjónum er sérstaklega beint að kirkjunni á Helgafelli, trúariðkun Guðrúnar og játningunni „Þeim var eg verst er eg unni mest“. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að Guðrún er ekki aðeins drifkraftur frásagnar Laxdæla sögu heldur einnig persóna sem speglar víðtækar samfélagslegar og trúarlegar breytingar á Íslandi á miðöldum, þar sem umbreyting frá heiðnum heiðursgildum til kristinnar iðrunar og sjálfsskoðunar verður sýnileg í einni lífssögu.
Fields of Study & Subjects
Medieval Literature and History
Historical Studies of British Isles
Religious
Philosophical
and Educational Studies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis