Þegar hetjan er kona: Samanburður á ferðalagi hetjunnar eftir kynferði hennar
Abstract
Furðusagna- og fantasíubókmenntaheimurinn hefur lengi verið karllægur og meira verið um karlkyns lesendur og höfunda að slíkum sögum. Síðustu fimmtíu árin hafa kvenhöfundar verið að skrifa fantasíur í auknum mæli og náð miklum vinsældum. Samt sem áður virðast þær ekki njóta sambærilegrar virðingar og karlhöfundar sem til dæmis má sjá af því að þær eru gjarnan hvattar til þess að skrifa fantasíur fyrir börn og ungmenni. Jafnframt hafa kvenhöfundar þurft að fela kynferði sitt með því að skrifa undir dulnefni til að eiga meiri möguleika á að selja bækur sínar. Gerður var samanburður á tveimur rithöfundum, Terry Brooks annars vegar og Tamora Pierce hins vegar, og tvö af verkum þeirra borin saman, The Sword of Shannara (1977) og Alanna (1983). Sjónum var sérstaklega beint að því hvort munur sé á þegar kona fer í hlutverk hetjunnar eins og í verki Pierce. Notast var við hetjusöguna og ferðalag hetjunnar sem greiningartól fyrir rannsóknina, þá sérstaklega skrif Christophers Voglers í Ferð höfundarins sem kom upprunalega út árið 1992 en hér miðað við íslenska þýðingu frá 2012 og skrif Lori M. Campbell A Quest of Her Own frá 2014. Kvenhetjur hafa oft birst í mörgum ævintýrum og eldri sögum en meira sem óvirkar persónur og gjarnan verið „verðlaun“ í lok ferðarinnar fyrir karlhetju, þær birst sem hjálparar eða dregin upp mynd af þeim sem slæmum manneskjum. Lori M. Campbell greinir kvenkyns hetjuna (e. female hero) í bók sinni og sýnir fram á að í því hlutverki komist þær hvað næst karlhetjuhlutverkinu með hetjudáðum sínum en á sínum eigin forsendum og í kvenmannslíkama sínum. Það þýðir að þær geta barist og verið afar færar um að bjarga sér. Umhyggja og umönnun eru einnig stór þáttur í fari þeirra sem og kynferði en allt eru þetta einkenni sem verða hluti af hetjusögu þeirra og ferðalagi.
Fields of Study & Subjects
Narrative Theory and Analysis
Themes in Literature Analysis
Contemporary Literature and Criticism
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis