Móðurharðindi: Saga um ást
Abstract
Móðurharðindi. Saga um ást er sannsaga. Frásögnin er fléttuð saman úr þremur þráðum: Dvöl höfundar við Lakagíga þar sem hún starfaði sumarlangt sem landvörður, náttúruhamförunum sem þar urðu seint á 18. öld og Móðuharðindunum sem fylgdu og loks reynslu höfundar af því að ala upp fjölfatlaðan son sinn. Frásögnin skiptist í kafla sem flakka á milli þráðanna þriggja og þannig afhjúpast og dýpkar umfjöllunarefnið smám saman. Leitast er við að vekja hugrenningatengsl á milli stórsögunnar og einkasögunnar og á milli þess að vernda náttúruna og annast um fatlaðan einstakling. Sagan er óður móður til sonar og konu til móður náttúru. Heimildaskrá fylgir sannsögunni. Þar á eftir er greinargerð um ritunarferlið, svo sem um mótvinda og meðvinda sem léku um höfund meðan á því stóð og hugleiðingar um frásagnarformið sannsögu. Loks eru vangaveltur um rétt höfundar til að fjalla um líf sonar síns. Lestina rekur sérstök heimildaskrá fyrir greinargerðina.
Fields of Study & Subjects
Diverse Music Education Insights
Musicians’ Health and Performance
Diverse Musicological Studies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis