Líkindaásetningur í manndrápsmálum: Samanburðargreining á orðalagi og skýrleika líkindaásetnings í dómaframkvæmd Norðurlanda

Authors: Gaukur Steinn Guðmundsson 1997-
Cited by: 0

Abstract

Þegar einstaklingur er ákærður fyrir refsivert brot ber dómstólum ekki einungis að meta hvort hann hafi sannarlega unnið verknaðinn, heldur einnig hvort huglæg afstaða hans til afbrotsins hafi verið saknæm, þ.e. annaðhvort unnin af ásetningi eða gáleysi. Í íslenskum refsirétti er almennt viðurkennt að ásetningur skiptist í fjögur stig, sem fela í sér mismunandi kröfur til vilja eða vitundar gerandans. Eitt þessara stiga er líkindaásetningur, sem einnig er viðurkennt ásetningsstig í norskum og dönskum refsirétti. Skilgreiningu hans er hvorki að finna í íslenskum né dönskum hegningarlögum og ræðst inntak hans því að mestu af fræðiskrifum og dómaframkvæmd. Markmið ritgerðarinnar er að gera líkindaásetningi ítarleg skil, fjalla um kenningar norrænna fræðimanna um ásetning og greina hvernig honum er beitt í ásetningsmati norrænna dómstóla. Fjallað er um grundvallarhugtök tengd saknæmisskilyrðunum ásetningi og gáleysi, ásetningsstigin, aðferðir dómstóla við sönnunar- og sakarmat og áhrif ásetningsstigs á ákvörðun refsingar. Þá er einnig lagt mat á orðalag líkindaásetnings í norrænni dómaframkvæmd og kannað hvort greina megi mun á nálgun íslenskra, norskra og danskra dómstóla. Að auki er rannsakað hvort greina megi aukinn skýrleika í íslenskum dómum í kjölfar stofnunar nýs millidómstigs. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að mat á huglægri afstöðu geranda til verknaðar og afleiðinga hans sé oft vandkvæðum bundið, einkum þegar engin vitni eða játning liggja fyrir. Þá benda niðurstöður til þess að dómstólar tilgreini sjaldnast berum orðum hvaða ásetningsstig huglæg afstaða fellur undir, heldur beiti orðalagi sem ekki er ávallt einhlítt eða skýrt. Einnig sýna niðurstöður að mörkin milli ásetningsstiganna séu ekki alltaf ljós. Fræðileg athugun leiðir jafnframt í ljós að líkindaásetningur hafi þróast með ólíkum hætti í Noregi og Danmörku, þar sem miðað er við lægra líkindastig heldur en tíðkast á Íslandi. Þá liggur fyrir að ásetningsstigin hafa verið lögfest í norsku hegningarlögunum og að Hæstiréttur Noregs geri strangar kröfur til skýrlega rökstudds ásetningsmats dómstóla og vísar að jafnaði berum orðum til þess ásetningsstigs sem um ræðir. Að lokum benda niðurstöður til þess að greina megi aukinn skýrleika í nýlegum dómum Hæstaréttar og orðalagi ásetnings, m.a. með nýlegum skilgreiningum sem dómstóllinn setti fram og héraðsdómur og Landsréttur hafa síðan byggt á í dómaframkvæmd.

Fields of Study & Subjects

Historical Economic and Legal Thought Medieval and Early Modern Justice Historical Legal Studies and Society

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis