Líðan starfsfólks í samruna og kaupum fyrirtækja: Samanburður á innlendri og erlendri menningu
Abstract
Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun og líðan starfsfólks í samruna og yfirtökuferlum, með sérstakri áherslu á upplýsingagjöf, andlega líðan og upplifun starfsfólks á tímum óvissu. Með tímum óvissu er hér vísað til tímabilsins frá formlegri tilkynningu um kaup eða samruna, þegar samþættingarferlið hefst, en áður en samrunanum hefur verið endanlega lokið. Samrunar og yfirtökur fyrirtækja hafa orðið sífellt algengari á íslenskum vinnumarkaði og hafa jafnframt aukist með vaxandi aðkomu erlendra fjárfesta. Rannsóknir hafa sýnt að árangur slíkra breytinga ræðst ekki eingöngu af rekstrarlegum þáttum, heldur einnig af því hvernig starfsfólk upplifir ferlið og hvort því séu veittar skýrar, tímanlegar og áreiðanlegar upplýsingar um breytingarnar. Í þessari rannsókn var beitt eigindlegri aðferðafræði og tekin átta hálfopin viðtöl. Allir viðmælendur störfuðu hjá íslensku fyrirtæki sem annað hvort hafði verið keypt af öðru íslensku fyrirtæki eða gengið í gegnum yfirtöku erlends fyrirtækis. Öll fyrirtæki sem viðmælendur störfuðu hjá sameinuðust að einhverju leyti inn í fyrirtækið sem stóð fyrir kaupunum. Þetta á bæði við um samruna í fyllstu merkingu, þar sem fyrirtækið sameinast að öllu leyti inn í móðurfélagið, og um tilvik þar sem kaupandinn innleiðir fyrirtækið að hluta til í sitt skipulag en heldur jafnframt í ákveðin sérkenni þess fyrirtækis sem keypt er.Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að upplýsingagjöf gegnir lykilhlutverki í upplifun starfsfólks, bæði hvað varðar andlega líðan á meðan ferlinu stendur og hversu mikil óvissa skapast þegar nýjar aðstæður eru að mótast og næstu skref liggja ekki endanlega fyrir. Á þeim vinnustöðum þar sem upplýsingagjöf var skýr, regluleg og aðgengileg upplifði starfsfólk minni óvissu og meiri trú á breytingunni, sem leiddi til aukinnar jákvæðni og opnari afstöðu gagnvart þeirri vegferð sem fram undan var. Þar sem upplýsingagjöf var hins vegar ófullnægjandi jókst kvíði og streita, auk þess sem tilhneiging var til að fylla í upplýsingaskort með eigin túlkunum og ályktunum. Einnig kom í ljós að samruni við erlent fyrirtæki leiddi oftar til aukinnar formfestu og hraðari innleiðingar, en á sama tíma komu fram fleiri menningarlegar áskoranir. Samrunar innanlands einkenndust hins vegar frekar af óljósum boðleiðum, lengri biðtíma og meiri óvissu um næstu skref. Þrátt fyrir ólíkar upplifanir viðmælenda voru niðurstöður rannsóknarinnar mjög sambærilegar að því leyti að líðan starfsfólks réðist að miklu leyti af samskiptum stjórnenda og gæðum upplýsingamiðlunar í gegnum allt ferlið. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að fyrirtæki tryggi vandaða og markvissa upplýsingagjöf, veiti starfsfólki stuðning og sinni samskiptum af festu í breytingaferlum, með það að markmiði að draga úr óöryggi og efla líðan starfsfólks. Niðurstöður benda til þess að með auknu gegnsæi, skýrari ferlum og auknum skilningi á andlegum áhrifum breytinga á starfsfólk megi stuðla að farsælli aðlögun þess og þar með árangursríkari samruna. Samruni telst almennt ekki hafa heppnast ef starfsfólk er ekki reiðubúið til að taka þátt í sömu vegferð og fyrirtækið er á.
Fields of Study & Subjects
Organizational Downsizing and Restructuring
Firm Innovation and Growth
Regional resilience and development
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis