Reynsla foreldra uppkomins fatlaðs fólks af flutningi þess úr foreldrahúsum
Abstract
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu foreldra uppkomins fatlaðs fólks af flutningi hinna síðarnefndu úr foreldrahúsum. Sérstaklega var horft til reynslu foreldra varðandi aðdraganda að flutningi, umsóknir um búsetuúrræði og hvernig þjónustuþörfum fatlaðra barna þeirra væri mætt. Rannsóknin er eigindleg og unnin samkvæmt vinnulagi grundaðrar kenningar í anda félagslegrar mótunarhyggju. Þátttakendur voru foreldrar átta fatlaðra einstaklinga en skilyrði fyrir þátttöku var að vera foreldri fullorðins fatlaðs einstaklings sem var að fara að flytja eða var fluttur að heiman. Þrír fatlaðir einstaklingar voru við það að flytja en hinir fimm voru fluttir að heiman. Gagna var aflað með hálfopnum viðtölum og þau kóðuð og greind í framhaldinu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að „kerfið“ hafði gert ráð fyrir því að fjölskyldur sæju alfarið um uppkomin börn sín meðan þau bjuggu enn í foreldrahúsum. Það leiddi til þess að foreldrum fannst erfitt að treysta kerfinu og stíga til hliðar þegar að búferlaflutningum kom. Það tók mjög á fjölskyldurnar að reyna að fá viðeigandi búsetuúrræði fyrir uppkomin börn sín og í umsóknarferlinu var takmarkað val um húsnæði og skortur á leiðbeiningum um hvernig best væri að standa að málum. Fram komu mýmörg dæmi um það að takmarkað tillit væri tekið til einstaklingsbundinna og fötlunartengdra þarfa unga, fatlaða fólksins eftir að þau fluttu að heiman. Stöku foreldrar óttuðust að börn þeirra yrðu misnotuð á einhvern hátt og tengdu það ónógu eftirliti með starfsemi þjónustuúrræða. Svo virtist sem kerfið gerði áfram ráð fyrir aðkomu fjölskyldunnar eftir flutning úr foreldrahúsum og það var oft forsenda þess að allt gengi vel eftir. Þótt foreldrar hafi allir lýst þrautargöngu og glímu við kerfið þegar þeir litu yfir farinn veg voru málin þó oft komin í betri farveg þegar gagnaöflun fór fram. Margt í frásögn foreldra bendir til þess að þjónusta við fatlaða einstaklinga á Íslandi standist ekki þær kröfur sem koma fram í Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem og lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Fields of Study & Subjects
Child Welfare and Adoption
Child Abuse and Trauma
Family Dynamics and Relationships
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis