„Ég er allavega mjög ánægð í starfi og hluti af því er sjálfstæði og sjálfræði til starfsþróunar“ Starfsþróun íslenskra framhaldsskólakennara og stuðningur skólameistara við starfsþróun kennara

Authors: Sigríður Huld Jónsdóttir 1969-
Cited by: 0

Abstract

Starfsþróun framhaldsskólakennara er lykilþáttur í að tryggja gæði náms og kennslu í síbreytilegu samfélagi og skólastarfi. Breyttar kröfur samfélagsins, aukin tæknivæðing og fjölbreyttur nemendahópur kalla á stöðuga starfsþróun sem byggir upp faglega hæfni kennara. Ábyrgð á starfsþróun framhaldsskólakennara á Íslandi er að mestu hjá kennurunum sjálfum. Þrátt fyrir að hlutverk skólastofnanna sé takmarkað hvað varðar starfsþróun kennara, þá er stuðningur skólameistara við starfsþróun kennara mikilvæg. Markviss starfsþróun eykur hæfni kennara til að nýta nýjar kennsluaðferðir, stuðlar að nýsköpun og styrkir faglegt sjálfstæði. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á mikilvægi starfsþróunar íslenskra framhaldsskólakennara og hvernig skólameistarar geta stutt við hana. Jafnframt er skoðaður skilningur kennara á eigin atvinnuhæfni. Gögn voru unnin úr hálfopnum viðtölum við átta framhaldsskólakennara í átta framhaldsskólum á Íslandi. Þemagreining var notuð til að draga fram helstu mynstur í upplifun viðmælenda. Fimm þemu voru skilgreind upp úr viðtölunum: af hverju kennari?, starfsþróun, stuðningur skólameistara, stuðningur samkennara og atvinnuhæfni. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að viðmælendur í þessari rannsókn hafa mikla ástríðu fyrir störfum sínum. Þeir eru að öllu jafna mjög opnir gagnvart því að ígrunda störf sín með óformlegum og formlegum hætti í gegnum fjölbreyttar leiðir starfsþróunar. Þeir vilja halda sjálfstæðu sínu hvað varðar frelsi til að velja hvernig þeir nýta tíma sinn í starfsþróun en vilja jafnframt stuðning frá skólameisturum, sérstaklega hvað varðar tíma og umgjörð um starfsþróun og skipulag hennar, sem hluta af daglegu skólastarfi. Viðmælendur eru meðvitaðir um atvinnuhæfni sína í almennum skilningi þess hugtaks en hugsa lítið um að það skipti máli í þeirra störfum, öðru en því að vera tilbúin að gera betur fyrir námið og nemendur sína. Öflug starfsþróun og kennslufræðileg forysta er mikilvægur þáttur, bæði til að efla skólana og námið en einnig til að halda í gott starfsfólk og efla samkeppnishæfni skólanna um hæft starfsfólk. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru því mikilvægt framlag til að styðja við stefnumótun hvað varðar starfsþróun í framhaldsskólum og gerð menntastefnu til framtíðar. Lykilhugtök ritgerðarinnar eru starfsþróun, atvinnuhæfni, framhaldsskóli, skólameistarar, framhaldsskólakennarar, kennslufræðileg forysta.

Fields of Study & Subjects

Teacher Education and Leadership Studies School Leadership and Teacher Performance Education and Teacher Training

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis