Þátttaka í netsamfélögum. Megindleg rannsókn á áhrifum hinseginleikans

Authors: Kristín Birta Helgadóttir 2002-
Cited by: 0

Abstract

Tæknin er orðin stór hluti af lífi fólks víða um heim, þar með er netið orðið sjálfsagður og nauðsynlegur hluti flestra samfélaga sem mikilvægt er að kanna. Í þessari rannsókn var ein hlið þess könnuð, sem eru netsamfélög og í nánari skilningi aðdáendamenning þar. Það var notuð spurningalistakönnun sem birt var á samfélagsmiðlinum Tumblr, enn fremur voru könnuð tengsl þeirra við hinseginleika. Byggt er á kenningu Goffmans um áhrifastjórnun, kenningar um þriðju svæði og fyrri rannsóknum á netsamfélögum. Niðurstöður benda til þess að hlutfall hinsegin einstaklinga er hærra í þeim hópum sem teknir voru fyrir heldur en í samfélaginu almennt. Enn fremur virðast hinsegin einstaklingar hafa sterkari innlifun í netsamfélög, sem kemur enn meira fram meðal trans og kynsegin fólks. Til þess að mæla styrkleika innlifunar voru notaðar nokkrar breytur í samsetta mælingu, með það markmið að kanna hversu mikið svarendur lifa sig inn í netsamfélög. Þátttakendur í netsamfélögum finna fyrir meiri stjórn á framkomu sinni á netinu heldur en í raunheimum. Ástæður fyrir þátttöku eru fjölbreyttar en meðal þeirra eru aðgengi að upplýsingum og efni tengt áhugamálum, einnig tengsl við fólk. Í ritgerðinni er enn fremur fjallað ítarlega um ferlið að framkvæma megindlega rannsókn frá grunni og þar með búa til spurningalistakönnun.

Fields of Study & Subjects

Gender Feminism and Media LGBTQ Health Identity and Policy Gender and Feminist Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis