„Aldrei hafa svo margir hugsað svo mikið um eitthvað sem varðar svo fáa“ Greiningar á stöðu trans barna og ungmenna í Danmörku

Authors: Guðrún Margrét Vilhelmsdóttir 1965-
Cited by: 0

Abstract

Rannsóknin ber saman aðstæður trans barna og ungmenna undir 18 ára aldri í Danmörku og á Íslandi, með áherslu á lagalega kynleiðréttingu og aðgengi að þjónustu. Markmið hennar er að varpa ljósi á hvernig ólíkur lagarammi og samfélagslegt viðmót mótar lífsskilyrði trans barna og fjölskyldna þeirra og hvort aðstæður þeirra í Danmörku séu í raun sambærilegar við þær sem bjóðast á Íslandi. Niðurstöður sýna að þrátt fyrir ímynd Danmerkur sem framsækins jafnréttissamfélags eru lagaleg úrræði þar takmörkuð, einkum vegna kynjaðra kennitalna og aldursmarka. Trans börn og ungmenni geta ekki breytt lagalegri skráningu kyns fyrr en við 18 ára aldur, sem leiðir til þess að þau þurfa ítrekað að útskýra og réttlæta misræmi milli útlits og skráðs kyns í daglegum samskiptum við stofnanir og þjónustukerfi. Á Íslandi er staðan önnur, lög um kynrænt sjálfræði gera ungmennum kleift að breyta skráningu kyns við 15 ára aldur og jafnvel yngri börnum með samþykki forsjáraðila. Greining á dönskum fjölmiðlum sýnir að umræða um trans börn einkennist oft af áhyggjum, vanþekkingu og pólitískri slagsíðu, þar sem rödd trans barna og foreldra þeirra er jaðarsett. Í umræðunni er gjarnan gert lítið úr kynama og því lýst sem tímabundnum eða eðlilegum kynjatengdum erfiðleikum, á meðan mögulegar meðferðarleiðir eru settar fram sem tilraunakenndar fremur en sem raunhæfir valkostir til að bæta velferð, líðan og félagslega þátttöku. Afleiðingin er sú að umræðan mótast frekar af ótta við frávik frá hefðbundnum kynjanormum en af raunverulegri innsýn í aðstæður trans barna og ungmenna. Umræðan einkennist því oft af að talað er um trans fólk en ekki við það.

Fields of Study & Subjects

LGBTQ Health Identity and Policy Gender Sexuality and Education Gender and Feminist Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis