Sæstrengur frá Íslandi til Bretlands: Áhrif á raforkuverð, neyslukostnað og velferð á Íslandi í samanburði við reynslu Norðmanna
Abstract
Ritgerð þessi fjallar um möguleg áhrif lagningar sæstrengs frá Íslandi til Bretlands á raforkuverð, neyslukostnað heimila og samfélagslega velferð á Íslandi. Slík tenging myndi fela í sér grundvallarbreytingu á íslenska raforkukerfinu, þar sem innlent raforkuverð yrði að einhverju marki tengt við evrópskan raforkumarkað með hærra og sveiflukenndara jaðarkostnaðarverði. Markmið ritgerðarinnar er að greina efnahagsleg og velferðaráhrif slíkrar markaðstengingar með hliðsjón af reynslu Noregs, sem hefur á undanförnum árum tengst Evrópu í gegnum sæstrengi til Þýskalands, Hollands og Bretlands. Greiningin byggir á opinberum gögnum, skýrslum og fyrri rannsóknum um raforkumarkaði, með áherslu á verðmyndun, flutningsgetu og dreifingu ábata og kostnaðar milli neytenda, framleiðenda og ríkisins. Niðurstöður benda til þess að lagning sæstrengs myndi að öllum líkindum leiða til hækkunar og aukinnar sveiflu í innlendu raforkuverði, nema gripið yrði til markvissra mótvægisaðgerða. Slík þróun hefði neikvæð áhrif á neytendaábata og neyslukostnað heimila, þótt áhrifin væru vægari en í þeim löndum þar sem rafmagn er meginuppspretta húshitunar. Á sama tíma gæti sæstrengur skapað aukinn framleiðendaábata og þjóðhagslegar tekjur, einkum ef tekjur af útflutningi og flutningsgetu eru nýttar með skýrri stefnu um auðlindarentu og endurdreifingu. Ritgerðin sýnir að áhrif sæstrengs ráðast ekki einungis af tæknilegri eða fjárhagslegri hagkvæmni verkefnisins, heldur af stofnanalegri umgjörð og innlendri flutningsgetu. Án skýrra reglna um vernd heimila, tekjuskiptingu og samfélagslega sátt er hætta á að samfélagslegur kostnaður verði meiri en ávinningurinn, jafnvel þótt verkefnið standi undir sér í þröngum fjárhagslegum skilningi. Í heild sinni varpar ritgerðin ljósi á að ákvörðun um sæstreng frá Íslandi til Bretlands er fyrst og fremst stefnumótandi val um raforkuverð, áhættudreifingu og velferð, fremur en tæknilegt innviðaverkefni eitt og sér.
Fields of Study & Subjects
European Socioeconomic and Political Studies
Renewable Energy and Sustainability
Merger and Competition Analysis
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis