Rafrænar kosningar og kosningaþátttaka
Abstract
Á undanförnum árum hefur kosningaþátttaka á Íslandi farið minnkandi eins og víðast í heiminum, ekki síst meðal yngri kjósenda. Fyrirkomulag kosninga er eitt af því sem getur haft áhrif á kosningaþátttöku. Ég hafði áhuga á að skoða hvort það gæti mögulega leitt til aukinnar kosningaþátttöku í Alþingiskosningum að teknar væru upp rafrænar kosningar þar sem kjósendur gætu greitt atkvæði með öruggum rafrænum hætti með tölvu, síma eða öðru snjalltæki. Einnig hvort tengsl væru milli mögulegrar aukningar og aldurs, menntunar og tekna. Samkvæmt þeim fræðilega grunni sem þessi ritgerð byggir á er ástæða til að ætla að kosningaþátttaka aukist í takt við hærri aldur, meiri menntun og auknar tekjur kjósenda. Settar eru fram fimm rannsóknarspurningar og til að svara þeim var framkvæmd spurningakönnun og byggir öll framkvæmd hennar, úrvinnsla gagna og túlkun niðurstaðna á megindlegum rannsóknaraðferðum. Þekkingarfyrirtækið Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar sem fór fram í febrúar og mars 2025. Úrtakið samanstóð af 2.100 einstaklingum 18 ára og eldri og var svarhlutfallið 50%. Niðurstöður rannsóknarinnar benda ekki til þess að tilkoma rafrænna kosninga muni auka kosningaþátttöku ef miðað er við þátttökuna í Alþingiskosningunum 2024. Hlutfall þeirra sem sögðust telja það mjög eða frekar líklegt að þeir myndu kjósa í Alþingiskosningum ef kosið yrði í dag, óháð því hvort það væri með rafrænum hætti eða hinum hefðbundna, var 80%, sem er sama hlutfall kjósenda sem raunverulega kusu í kosningunum 2024. Tilkoma rafrænna kosninga mun því ekki auka kosningaþátttöku í Alþingiskosningum. Rúmlega helmingur svarenda, eða 57%, taldi hins vegar frekar eða mjög líklegt að þau myndu frekar kjósa með öruggum rafrænum hætti en hinum hefðbundna ef það yrði í boði. Ekki fengust tölfræðilega marktækar niðurstöður um það hvort munur væri á milli aldurs-, menntunar- eða tekjuhópa og þess að vilja frekar greiða atkvæði með öruggum rafrænum hætti.
Fields of Study & Subjects
Electoral Systems and Political Participation
Internet Traffic Analysis and Secure E-voting
Social Media and Politics
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis