Return to work following pregnancy loss: “It is not the natural order of life to lose a child, and the responses that are required are, in fact, entirely different”

Authors: Kolbrún Tómasdóttir 1989-
Cited by: 0

Abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvernig fyrirtæki og stofnanir styðja starfsfólk sem fer í sorgarleyfi eftir missi á meðgöngu og snýr síðan aftur til vinnu að því loknu. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við tíu einstaklinga sem stýra mannauðsmálum innan sinnar skipulagsheildar. Niðurstöður sýna að sveigjanleiki í vinnu er lykilþáttur í því að auðvelda endurkomu starfsmanna eftir missi á meðgöngu. Viðmælendur lögðu áherslu á einstaklingsmiðaðar lausnir þar sem starfsfólk fær svigrúm til að móta endurkomu sína í samráði við stjórnendur. Þá kom fram að þótt formlegir verkferlar geti veitt mikilvægan ramma sé mannleg nálgun, samtal og traust lykilatriði í því að stuðningur nýtist sem best. Einnig reyndist stuðningur við stjórnendur og aðgangur að utanaðkomandi fagaðilum skipta máli í erfiðum aðstæðum. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að þróa sveigjanlegt og styðjandi vinnuumhverfi sem tekur mið af ólíkum þörfum einstaklinga og stuðlar að vellíðan starfsfólks eftir áföll, líkt og missi á meðgöngu. Lykilorð: Sorgarleyfi, missir, áföll, sveigjanleiki, mannauðsstjórnun

Fields of Study & Subjects

Grief Bereavement and Mental Health Workplace Health and Well-being Work-Family Balance Challenges

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis