Við erum náttúrulega bara í samkeppni við heiminn um gott fólk. Þjónusta við innflytjendur á almenningsbókasöfnum á landsbyggðinni

Authors: Kristín Berglind Oddsdóttir 1969-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari eigindlegri rannsókn er spurt hvernig almenningsbókasöfn á landsbyggðinni eru í stakk búin að þjónusta innflytjendur, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Tekin voru 13 hálfopin viðtöl við starfsmenn almenningsbókasafna á landsbyggðinni til þess að varpa ljósi á það hverjar væru helstu áskoranirnar sem þeir standa frammi fyrir til að sinna þessum hópi. Einnig er rýnt í stefnur ríkis og sveitarfélaga í málaflokknum með tilliti til þess hvernig þær hafa áhrif á hvernig bókasöfn veita þjónustu fyrir þessa hópa. Niðurstöður benda til að þó starfsfólk almenningsbókasafna á landsbyggðinni leggi sig fram um að þjónusta innflytjendur er þörf til að gera betur. Helstu áskoranir sem viðmælendur nefndu eru tungumálaörðugleikar, vandann við að ná til hópa sem þekkja ekki til bókasafnanna og að nálgast erlendan bókakost. Rannsóknin dregur einnig fram hvernig fjöldi starfsfólks og stærð bókasafna getur haft mikil áhrif, bæði hvað varðar opnunartíma, fjölda viðburða og kaup á erlendum bókakosti. Einnig kom fram að fáir töldu sig hafa fengið nægjanlega faglega leiðsögn eða fræðslu um málefni innflytjenda. Leggja þarf meira fjármagn til almenningsbókasafna svo hægt sé að fjölga starfsfólki og þannig að bjóða upp á enn meiri þjónustu til innflytjenda. Enn fremur þarf stefnumörkun ríkis og sveitarfélaga að vera skýrari um hlutverk almenningsbókasafna svo nýta megi möguleika þeirra sem best í þjónustu við innflytjendur.

Fields of Study & Subjects

Library Science and Administration Library Science and Information Web and Library Services

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis