Sparnaður, fjárfestingar og skuldsetningar einstaklinga: Greining á hegðun viðskiptavina Landsbankans
Abstract
Á undanförnum árum hefur fjármálahegðun einstaklinga tekið miklum breytingum meðal annars vegna hraðrar stafrænnar þróunar og aukins aðgengis að fjármálaþjónustu. Markmiðið með þessari rannsókn er að greina sparnaðar-, fjárfestingar- og skuldsetningarhegðun einstaklinga á Íslandi árið 2020-2025 og kanna hvort mynstur í hegðun sé ólík eftir aldri og kyni samhliða vaxtabreytingum. Rannsóknin byggir á ópersónugreinanlegum gögnum frá Landsbankanum meðal annars um sparnaðarlausnina „Spara í appi“, ný íbúðalán, lánsupphæðir, lánategundir og vexti, auk opinberra gagna um stýrivexti Seðlabanka Íslands. Greiningin er framkvæmd með lýsandi tölfræði, tímaraðagreiningu sett fram sem hlutfallsbreyting og hreyfanlegu meðaltali til þess að draga úr skammtímasveiflum. Þá eru metin aðhvarfslíkön fyrir lánsupphæðir og probit- líkan til að meta líkur á vali óverðtryggðs láns. Niðurstöður sýna að sparnaðarvöxtur var tiltölulega hár og sveiflukenndur í kjölfar fyrstu stýrivaxtahækkunar í maí 2021 en varð jafnari og minni þegar leið á tímabilið, sem bendir til þess að aðlögun að nýju vaxtastigi hafi átt sér stað. Aldur virðist skýra meiri breytileika í sparnaði en kyn þar sem eldri aldurshópar spara meira en yngri aldurshópar. Greining á íbúðalánum bendir til þess að hærri vextir tengist almennt lægri lánsupphæðum og að áhrif vaxta séu mismunandi eftir lánategundum. Probit-líkanið sýnir að vaxtamunur milli óverðtryggðra og verðtryggðra lána hefur marktæk áhrif á lánaval þar sem hækkun vaxta óverðtryggðra lána dregur úr líkum á vali þeirra en hækkun vaxta verðtryggðra lána eykur líkur á vali óverðtryggðs láns. Að lokum benda niðurstöður til tímabundinna tilfærslna í fjármálahegðun í kringum fyrstu stýrivaxtahækkunina á rannsóknartímabilinu, þar sem vöxtur sparnaðar var um tíma meiri en vöxtur íbúðalána en munurinn varð minni þegar leið á tímabilið. Heildarniðurstöður undirstrika að vaxtabreytingar tengjast ekki aðeins umfangi fjármálaákvarðana heldur einnig samsetningu þeirra sem hefur hagnýtt gildi fyrir mat á hegðun heimila og þróun fjármálaþjónustu.
Fields of Study & Subjects
Financial Literacy
Pension
Retirement Analysis
Banking stability
regulation
efficiency
FinTech
Crowdfunding
Digital Finance
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis