Þróun viðskipta- og tekjulíkana í tónlistariðnaðinum: Frá hljómplötum til streymis
Abstract
Tónlistariðnaðurinn hefur tekið miklum breytingum á síðustu áratugum, einkum vegna stafrænnar þróunar sem hefur umbreytt því hvernig tónlist er framleidd, dreift og neytt. Markmið þessarar ritgerðar er að greina hvernig viðskipta- og tekjulíkön í tónlistarheiminum hafa þróast frá hefðbundnum líkönum stórra hljómplötufyrirtækja yfir í ný líkön sjálfstæðra listamanna. Byggt er á fræðilegum líkönum, þar á meðal Business Model Canvas, kenningum um virði, þjónustuvæðingu og stafrænum vistkerfum. Gerð er grein fyrir breytingum á tekjustreymum, frá vörusölu og miðasölu yfir í áskriftir, og sýnt hvernig þessar breytingar hafa minnkað inngönguhindranir en jafnframt aukið ábyrgð listamanna á eigin rekstri. Tilvikagreining á sjálfstæðum listamanni styður niðurstöðurnar og sýnir hvernig ný tækni, samfélagsmiðlar og fjölbreytt dreifileiðakerfi gera listamönnum kleift að móta sjálfbær viðskipta- og tekjulíkön. Helstu niðurstöður benda til þess að stafræna umbreytingin hafi bæði aukið sjálfstæði listamanna og gert rekstrarumhverfið auðveldara, þar sem samspil vettvanga, reiknirita og tengsl við hlustendur hefur orðið miðlægt í virðissköpun og tekjuöflun. Ritgerðin varpar þannig ljósi á þróun tónlistarrekstrar í breyttu stafrænu umhverfi og þau tækifæri og áskoranir sem listamenn í nútímanum standa frammi fyrir.
Fields of Study & Subjects
Copyright and Intellectual Property
Music History and Culture
Digital Innovation in Industries
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis