The effects of rapid growth on organization, processes, and division of responsibility in the software development industry: „When the coffee machine chat doesn‘t cut it anymore“
Abstract
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að leggja til fræðilega og hagnýta sýn sem nýtist bæði stjórnendum og fræðimönnum til að skilja og stýra umbreytingarferlum í hugbúnaðargeiranum. Sjónum var sérstaklega beint að því hvaða þætti þarf að hafa í huga varðandi skipulagsbreytingar, ferlavæðingu og ábyrgðarskiptingu þegar fyrirtæki vaxa hratt og taka á sig flóknari mynd, í von um að svara rannsóknarspurningu verkefnisins: Hvernig hefur hröð stækkun hugbúnaðarfyrirtækja áhrif á skipulag, ferla og ábyrgðarskiptingu innan fyrirtækjanna? Framkvæmd var eigindleg rannsókn og tekin voru hálf-opin viðtöl við níu einstaklinga sem starfa hjá fjórum fyrirtækjum. Öll vinna þau við hugbúnaðarþróun og hafa farið í gegnum hraða stækkun á undanförnum misserum. Niðurstöður sýna að hröð stækkun hugbúnaðarfyrirtækja leiðir kerfisbundið til þess að óformlegt og sveigjanlegt skipulag verður ósjálfbært og kallar á þróun yfir í formlegri uppbyggingu með skýrari boðleiðum, ferlum og stjórnunarhlutverkum. Eftir því sem verkefnaumfang og teymisfjöldi eykst verður nauðsynlegt að innleiða stöðluð vinnuflæði, samhæfingarferla og aðferðarfræði eins og Agile, Scrum, DevOps eða blandaða aðferð til að tryggja yfirsýn og samræmi. Þessar skipulags- og stjórnunarlausnir þurfa að samsvara sérstöðu hugbúnaðargeirans, þ.e. byggja á þekkingarmiðaðri starfsemi og hlutverki sérfræðinga. Fremur en að byggja eingöngu á almennum, stöðluðum nálgunum þurfa fyrirtæki að aðlaga kenningar og aðferðir að sinni starfsemi. Ábyrgðarskipting breytist jafnframt verulega, þar sem stjórnunarhlutverk verða sérhæfðari og auknar kröfur eru gerðar til formlegs leiðtogahlutverks, teymisstjórnunar og samhæfingar á milli eininga. Séu þessir innviðir ekki byggðir samhliða vexti skapast flöskuhálsar, óljós ábyrgðarstaða og aukið álag, sem getur haft neikvæð áhrif á bæði velferð starfsmanna og rekstrarárangur.
Fields of Study & Subjects
Software Engineering Techniques and Practices
Organizational Management and Change
Organizational Change and Leadership
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis