„Nei, en ég vinn á Ríkisútvarpinu. Það eru hinir sem eiga erfiðara.“ Upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum.

Authors: Þorsteinn Hjálmsson 1996-
Cited by: 0

Abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að kanna upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum innan íslenskra fjölmiðla, með sérstakri áherslu á samanburð milli opinbera geirans og einkarekinnar starfsemi. Sálfræðilegi samningurinn vísar til óformlegra og huglægra væntinga og skuldbindinga sem móta samband starfsmanns og vinnuveitanda og hafa áhrif á traust, skuldbindingu, starfsánægju og framtíðarhorfur í starfi. Rannsóknin er sett í samhengi við tvískiptan íslenskan vinnumarkað og erfiðar rekstraraðstæður fjölmiðla, þar sem óvissa, niðurskurður og breytingar hafa verið áberandi undanfarin ár. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði og stuðst var við mælitækið Psychological Contract Inventory (PCI) sem ramma við mótun spurningalista með það að leiðarljósi að meta upplifun þátttakenda af væntingum, skuldbindingum og efndum sálfræðilega samningsins. Þátttakendur voru átta blaða- og fréttamenn sem starfa bæði á opinberum og einkareknum fjölmiðlum. Gögn voru greind með áherslu á þætti á borð við traust, hvatningu, þróun í starfi, laun, vinnuálag, starfsöryggi og framtíðarsýn. Niðurstöður sýna að munur er á upplifun sálfræðilega samningsins eftir því hvort þátttakendur starfa á opinberum eða almennum vinnumarkaði. Rekstraraðstæður fjölmiðla reyndust hafa mest áhrif, þá annarsvegar hjá Ríkisútvarpinu (RÚV) og hins vegar einkarekinna fjölmiðla, á muninn milli upplifunar starfsfólks. Starfsöryggi og stöðugleiki einkenna frekar upplifun þeirra sem starfa hjá opinberum fjölmiðlum, á meðan starfsfólk einkarekinna miðla upplifir meiri óvissu. Niðurstöðurnar sýndu þó einnig fram á að margt var sameiginlegt í upplifun blaða- og fréttamanna þvert á miðla gangvart þáttum eins og framtíðarsýn, vinnutíma, álagi og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Rannsóknin dregur því fram upp ákveðna sviðsmynd á því hvernig sálfræðilega samningnum er háttað á íslenskum fjölmiðlamarkaði og hvaða áskoranir stjórnendur fjölmiðla standa frammi fyrir.

Fields of Study & Subjects

Job Satisfaction and Organizational Behavior Media Studies and Communication Journalism and Media Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 February 2026
Language
IS
Document type
Thesis