,,That´s just what it´s like to be a woman‘‘: A study of women's experiences of the dismissal of their physical symptoms within the health care system.

Authors: Sannija Brunovska 2001-
Cited by: 0

Abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á reynslu kvenna af samskiptum við heilbrigðiskerfið og hvernig vald, kyngervi og trúverðugleiki móta þá reynslu. Sérstök áhersla var lögð á hvernig konur upplifa afskrift líkamlegra einkenna sinna og hvernig sú afskrift getur haft áhrif á sjálfsmynd, traust og tengsl þeirra við heilbrigðisstarfsfólk. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við sex konur á aldrinum 22-38 ára sem hafa allar leitað endurtekið til heilbrigðiskerfisins vegna einkenna sem síðar reyndust tengjast langvinnum kvillum. Gögnin voru greind með þemagreiningu þar sem fjögur meginþemu komu fram: ábyrgð færð yfir á sjúklinginn, gaslýsing og afskrift, vantraust gagnvart heilbrigðiskerfinu og kynbundinn mismunur. Niðurstöður sýna að konur upplifa að einkenni þeirra séu oft útskýrð með sálrænum þáttum fremur en líkamlegum orsökum og að þær þurfi að berjast fyrir því að rödd þeirra sé tekin alvarlega. Margar lýstu því að hafa þurft að sýna ákveðna hörku eða mæta með karlkyns aðstandanda til að tekið væri mark á þeim og að slík reynsla hafi haft áhrif á traust þeirra til kerfisins. Þessar frásagnir endurspegla kynbundið valdakerfi innan heilbrigðiskerfisins og þekkingarlegt ranglæti gagnvart konum sem þjást af ósýnilegum eða flóknum sjúkdómum. Í heild sinni draga niðurstöður fram mikilvægi þess að heilbrigðiskerfið viðurkenni fjölbreytta reynslu kvenna og taki mark á hennar margbreytileika. Með því má stuðla að réttlátara og mannúðlegra kerfi þar sem hlustað er á öll, óháð kyni.

Fields of Study & Subjects

Sex and Gender in Healthcare Gender Health and Social Inequality Patient-Provider Communication in Healthcare

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 February 2026
Language
IS
Document type
Thesis