Hvað kostar kennari? Kostnaður kennara í mismunandi aðildarfélögum Kennarasambands Íslands með áherslu á nýundirritaða kjarasamninga
Abstract
Launakostnaður er stærsti útgjaldaliður sveitarfélaga á Íslandi og kostnaðarsamasti málaflokkur sveitarfélaga eru fræðslu- og menntamál. Markmið þessarar ritgerðar er að svara spurningunni „Hvað kostar kennari?“. Spurningunni er svarað með því að greina launakostnað kennara í mismunandi aðildarfélögum Kennarasambands Íslands og skoða áhrif nýundirritaða kjarasamninga Kennarasambandsins á fjárhag sveitarfélaga. Ritgerðin byggir á gögnum frá ónefndu meðalstóru sveitarfélagi þar sem launasamsetningar starfsmanna í aðildarfélögum KÍ er fundnar og notaðar sem vægi til að reikna á landsvísu. Þessi gögn eru notuð til að reikna meðallaun hvers aðildarfélags og finna heildarlaunakostnað hvers aðildarfélags út frá fjölda félagsmanna. Sömu gögn eru að lokum notuð til að finna launakostnað á sveitarfélög um land allt. Til þess eru niðurstöður úr greiningu á meðallaunum og heildarlaunakostnaði fundin og sett í samhengi við heildarútgjöld sveitarfélaga og rekstur skóla skv. ársreikningum. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna meðallaun í hverju aðildarfélagi Kennarasambandsins, hlutfall launakostnaðar þeirra á sveitarfélög og að lokum hlutfall launakostnaðar á rekstur skóla.
Fields of Study & Subjects
Labor market dynamics and wage inequality
Labor Movements and Unions
Politics
Economics
and Education Policy
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis