Gaming Politics: Gatewatching of Nerd Masculinity and the Rise of the Far-Right in Gaming Communities
Abstract
Rannsóknir benda til þess að öfgahægri hugmyndafræði og kvenfyrirlitning hafi fest sér sess í ákveðnum hópum tölvuleikjaspilara. Í þessari ritgerð er tölvuleikjasamfélagið skoðað með sérstakri áherslu á netleiki með það að markmiði að greina hvers vegna það geti reynst frjór jarðvegur fyrir öfgahægri hugmyndafræði og kvenfyrirlitningu. Kenningar úr rannsóknum á samfélagsmiðlum eru settar í samhengi við tölvuleiki í ljósi svipaðra einkenna netleikja og samtvinnunar þeirra við samfélagsmiðla. Stuðst er við hugmyndir um bergmálshella, staðfestingarhlutdrægni, hliðvörslu og hliðvöktun, auk kenninga um nördakarlmennsku, einmanaleika karlmanna og tæknilega nauðhyggju. Í ritgerðinni er framkvæmd fræðileg greining sem byggir á fyrri rannsóknum á samfélagsmiðlum, greiningu á sögu tölvuleikjaiðnaðarins og greiningu á dæmum úr tölvuleikjasamfélaginu. Ekki bendir til þess að tölvuleikirnir sjálfir séu einir og sér beinn orsakavaldur öfgahægri skoðana heldur skiptir félagslega og menningarlega umgjörðin meira máli. Uppruni tölvuleikjasamfélagsins, nördakarlmennska, einmanaleiki og viðkvæm staða sumra ungra karlmanna á stærri þátt í að auka móttækileika fyrir öfgahugmyndum. Netleikir og samfélagsmiðlar tengdir þeim mynda þannig rými hliðvöktunar, bergmálshella og staðfestingarhlutdrægni þar sem fordómar geta viðgengist, meðal annars með áhrifavaldamenningu sem dylur öfgaskoðanir sem „grín“. Ritgerðin bendir þó á að þörf er á frekari megindlegum og eigindlegum rannsóknum á tengslum spilunar tölvuleikja, samfélagsumhverfis og pólitískra skoðana.
Fields of Study & Subjects
Digital Games and Media
Populism
Right-Wing Movements
Gender
Feminism
and Media
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis