Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna: innleiðing þvert á stjórnsýslustig

Authors: Þóra Marý Arnórsdóttir 1989-
Cited by: 0

Abstract

Opinber stefna stjórnvalda birtist meðal annars í lögum og ræðst árangur stefnumótunar að verulegu leyti af því hvernig hún er innleidd. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi 1. janúar 2022 og mörkuðu umfangsmikla stefnumótun í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra á Íslandi. Lögin gilda þvert á stjórnsýslustig og kerfi og fólu í sér viðtækar breytingar á verklagi, samstarfi og ábyrgð í málefnum barna. Markmið þessarar rannsóknar er að greina innleiðingu laganna með áherslu á samspil ríkis og sveitarfélaga í innleiðingarferlinu. Rannsóknin er eigindleg og byggir á hálfstöðluðum viðtölum við þrjá verkefnastjóra innleið¬ingar laganna í þremur meðalstórum sveitarfélögum. Greiningin er sett í fræðilegt samhengi kenninga um opinbera stefnumótun og innleiðingu stefnu. Niðurstöður rannsókn¬arinnar sýna að innleiðing laganna grundvallast á flóknu samspili milli stjórnsýslu¬stiga þar sem ráðuneyti ber ábyrgð á framkvæmdinni og ríkisstofnun sem heyrir undir það á að leiða innleiðingu á landsvísu. Ljóst er að samvinna hefur að mörgu leyti verið góð enda er sterk sameiginleg sýn á stefnumótunina, framkvæmd hennar og markmið og stuðningur ríkis, leiðbeiningar og fræðsla, var lykilatriði. Jafnframt benda niðurstöður á að þrátt fyrirs stuðning frá ríkinu standa sveitarfélög frammi fyrir miklum áskorunum er varða innleiðingu laganna sem snúa að fjármagni, mannauði, breyttu verklagi og samþættingu kerfa. Niðurstöður rannsókn¬arinnar varpa þannig ljósi á að árangur laganna til lengri tíma ræðst ekki síður af samræmdri innleiðingu, skýru samspili stjórnsýslustiga og viðeigandi stuðningi við sveitarfélög en af lagasetningunni sjálfri.

Fields of Study & Subjects

Public Policy and Administration Research Child Welfare and Adoption Legal and Social Justice Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis