„Munu þau koma öðruvísi fram við mig ef þau vita?“ Reynsla og líðan einhverfs fólks á íslenskum vinnumarkaði
Abstract
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna reynslu og líðan einhverfs fólks á íslenskum vinnumarkaði, með sérstaka áherslu á ráðningarferla, samskipti í starfi og aðlögun að félagslegum væntingum. Þrátt fyrir aukna umræðu um fjölbreytileika í mannauði hefur reynsla einhverfs fólks á vinnumarkaði verið lítið rannsökuð á Íslandi, og því var lögð áhersla á sjónarhorn þátttakenda sjálfra. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðarfræði og voru tekin viðtöl við sex einstaklinga sem höfðu það sameiginlegt að vera einhverfir. Niðurstöður sýna að þátttakendur upplifðu ráðningarferla sem félagslega krefjandi, þar sem óljósar væntingar, áhersla á fyrstu kynni og félagsleg frammistaða höfðu oft meira vægi en raunveruleg starfsgeta. Atvinnuviðtölunum var lýst sem aðstæðum sem kölluðu fram kvíða og óöryggi, sérstaklega vegna ófyrirsjáanleika og óskráðra reglna. Í starfinu sjálfu reyndist vinnustaðamenning og viðhorf samstarfsfólks og stjórnenda skipta máli fyrir líðan, starfsgetu og hvort þátttakendur treystu sér til að segja frá greiningu sinni. Frásagnir þátttakenda bentu einnig til þess að möskun, félagslegt úthald og orkustjórnun væru stórir þættir í daglegri reynslu þeirra í starfi. Margir lýstu því að vinnan tæki svo mikla orku að hún hefði í kjölfarið áhrif á einkalíf og heilsu þeirra. Á sama tíma kom fram sterkur vilji til að tilheyra vinnumarkaðnum, leggja sitt af mörkum og fá ánægju úr starfi. Rannsóknin undirstrikar að reynsla og líðan einhverfs fólks á vinnumarkaði mótast ekki eingöngu af einstaklingsbundnum þáttum, heldur í miklum mæli af kerfislægum þáttum, vinnustaðamenningu og aðgengi að stuðningi. Í frásögnum þátttakenda kom fram að fræðsla og þekking á einhverfu skipti máli fyrir upplifun þeirra af öryggi, stuðningi og þátttöku. Þeir lýstu að í þeim tilvikum þar sem samstarfsfólk og stjórnendur bjuggu yfir meiri þekkingu og skilningi á einhverfu, þá myndaðist rými fyrir skýrari samskiptum, sveigjanleika og aðlögun í starfi. Niðurstöðurnar varpa ljósi á mikilvægi fræðslu, sveigjanleika og raunverulegrar aðlögunar til að skapa aðstæður þar sem einhverft fólk getur blómstrað í starfi án þess að ganga á eigin heilsu.
Fields of Study & Subjects
Employment
Labor
and Gender Studies
Gender Diversity and Inequality
Gender and Feminist Studies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis