Seigla evrópskra hagkerfa: Viðbrögð smárra og stórra hagkerfa við eftirspurnar- og framboðsskellum

Authors: Jökull Máni Óttarsson 2003-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari ritgerð er seigla evrópskra hagkerfa gagnvart efnahagsáföllum greind, með sérstakri áherslu á mun milli smárra og stórra ríkja. Markmið ritgerðarinnar er að bera saman áhrif eftirspurnar- og framboðsskella á framleiðslu og verðbólgu og meta hvort munur milli landa, bæði innan og milli stærðarhópa, sé til staðar og hver sá munur er. Sérstök áhersla er lögð á að greina stöðugleika og viðnám hagkerfa til að meta seiglu þeirra. Til greiningar voru notuð VAR-líkön og viðbragðsföll (IRF) fyrir níu evrópsk ríki. Áhrif neikvæðra eftirspurnar- og framboðsskella voru metin með safni seigluvísitalna sem fanga dýpt áfalla, sveiflur í aðlögun, batahraða og langtímaáhrif. Þessi nálgun gerir kleift að bera saman aðlögunarferli hagkerfa yfir tíma fremur en að einblína á stærð upphafsáhrifa. Niðurstöður sýna að eftirspurnarskellir hafa almennt tímabundin áhrif á framleiðslu og verðbólgu í öllum löndum, þó að smærri hagkerfi upplifi meiri sveiflur og hærri aðlögunarkostnað. Framboðsskellir reynast hins vegar dýpri og þrálátari, sérstaklega fyrir lítil opin hagkerfi. Bæði framleiðsla og verðbólga sýna meiri sveiflur og varanleg áhrif. Stærri hagkerfi sýna almennt meiri stöðugleika og viðnám, einkum í verðbólgu. Greining Norðurlandanna bendir jafnframt til þess að smæð útiloki ekki seiglu. Lönd með sterkt stofnanalegt umhverfi, skilvirka stefnumótun og trúverðuga peningastefnu geta mildað áhrif efnahagsáfalla verulega. Niðurstöðurnar styðja þannig þá sýn að seigla ráðist ekki eingöngu af stærð hagkerfa heldur einnig af innri seiglumótandi þáttum.

Fields of Study & Subjects

Monetary Policy and Economic Impact Economic Theory and Policy Global trade and economics

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis