„Við erum dálítið varðmenn sannleikans". Um hlutverk og ímynd upplýsingafræðinga
Abstract
Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig starfandi upplýsingafræðingar upplifa eigin ímynd í íslensku samfélagi, hvernig hægt sé að stuðla að auknum sýnleika fagstéttarinnar, sem og hvernig upplýsingafræðingar sjá framtíð starfsstéttarinnar fyrir sér. Saga og þróun fagstéttarinnar á Íslandi var skoðuð. Rannsóknin var byggð á eigindlegum viðtölum við níu starfandi upplýsingafræðinga sem starfa á ólíkum starfsvettvöngum.Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ímynd upplýsingafræðinga er enn að verulegu leyti mótuð af úreltum og kynbundnum staðalímyndum tengdum bókasöfnum. Fagstétt upplýsingafræðinga er að mestu klofin á milli þeirra sem starfa á bókasöfnum og hinna sem starfa við upplýsinga- og skjalastjórn og virði þekkingarinnar að mati viðmælenda er misjafnt metin. Þar að auki kom fram að fagheitið „upplýsingafræðingur” væri of vítt og óskýrt sem gerir almenningi erfitt að átta sig á sérstöðu og hæfni fagstéttarinnar. Samhliða þessu kom fram að viðmælendur töldu mikla þörf á kerfisbundnum markaðsaðgerðum til að efla ímynd og sýnileika upplýsingafræðinga. Niðurstöðurnar bentu einnig til þess að framtíðarsýn viðmælenda einkennist annars vegar af tækifærum og hins vegar af áskorunum sem tengjast hröðum tæknibreytingum og tilkomu gervigreindar. Gervigreindin er talin geta létt undir ýmsa vinnu hjá upplýsingafræðingum, en á sama tíma mun hún ýta undir aukna þörf á upplýsingalæsi, gagnrýna hugsun og siðferðislegt mat á gögnum. Þá töldu viðmælendur að lögverndað starfsheiti upplýsingafræðinga væri mikilvægt verkfæri sem mætti nýta betur til að styrkja faglega stöðu, réttindi og virðingu fagstéttarinnar.
Fields of Study & Subjects
Information Science and Libraries
Library Science and Information
Library Science and Administration
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis