Þróun möguleika ungs fólks til kaupa á fyrstu fasteign

Authors: Íris Gunnarsdóttir 2002-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari rannsókn er fjallað um þróun möguleika ungs fólks á Íslandi til kaupa á fyrstu fasteign. Markmið ritgerðarinnar er að greina hvernig þróun fasteignaverðs, leiguverðs, tekna, efnahagsumhverfis og lánþegaskilyrða hefur haft áhrif á aðgengi einstaklinga á aldrinum 18-29 ára að eigin húsnæði á tímabilinu 2011-2025. Sérstök áhersla er lögð á áhrif lánsskilyrða og opinberra úrræða líkt og hlutdeildarlán. Ritgerðin byggir á megindlegri, lýsandi rannsóknaraðferð þar sem stuðst er við fyrirliggjandi tölfræðigögn frá Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Gögn um þróun tekna, íbúðaverðs og leiguverðs eru greind yfir tíma og sett fram með vísitölum og prósentubreytingu til að auðvelda samanburð á milli tímabila. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þrátt fyrir að tekjur ungs fólks hafi hækkað að nafnvirði hafi fasteignaverð og leiguverð hækkað hraðar, sem hefur dregið úr möguleikum til fasteignakaupa samanborið við fyrri tímabil. Hækkun stýrivaxta og hert lánþegaskilyrði valda því að krafist er hærri greiðslubyrðar sem gerir ungu fólki erfiðara fyrir að standast greiðslumat. Opinber úrræði á borð við rýmkun veðsetningarhlutfalls og hlutdeildarlán hafa þó auðveldað ungu fólki að hluta til að komast inn á fasteignamarkaðinn, en niðurstöðurnar benda til þess að úrræðin dugi ekki ein og sér til að vega upp á móti þróun markaðsaðstæðna. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að aðgengi ungs fólks að eigin húsnæði hafi versnað á rannsóknartímabilinu (2011-2025), þrátt fyrir tímabundnar umbætur og stuðningsaðgerðir.

Fields of Study & Subjects

Housing Market and Economics Financial Literacy Pension Retirement Analysis Housing Finance and Neoliberalism

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis