Þróun starfa hjá Reykjavíkurborg: Starfsmatskerfið og notkun þess

Authors: Auður Björgvinsdóttir 1976-
Cited by: 0

Abstract

Markmið þessarar meistararitgerðar var að kanna hvernig þróun starfa innan Reykjavíkurborgar hefur verið eftir innleiðingu starfsmatskerfis sveitarfélaga og greina hvort breytingar á störfum tengdust kyni, menntunarstigi, þjónustuþáttum eða sviðum. Rannsóknin byggði á afturskyggðri megindlegri rannsóknaraðferð þar sem stuðst var við fyrirliggjandi gögn úr starfsmatskerfi borgarinnar. Gögnin voru greind með lýsandi tölfræði, krosstöflum, kí-kvaðrat prófum og dreifigreiningu. Niðurstöður sýndu að marktæk tengsl eru milli kyns, menntunarstigs, þjónustuþátta og sviða og þess hvort störf taki breytingum í starfsmatskerfinu. Þó tengsl kyns og menntunarstigs við breytingar á störfum séu veik benda niðurstöður til þess að þjónustuþættir og svið hafi miðlungs til sterk tengsl við tíðni slíkra breytinga. Ritgerðin dregur jafnframt fram að helstu þróunartækifæri liggi frekar í verklagi við stofnun og endurmat starfa en í uppbyggingu kerfisins sjálfs. Í því samhengi er lögð áhersla á mikilvægi fræðilegrar þrepaflokkunar, sambærilegri þeirri sem kemur fram í öðrum starfsmatskerfum opinberra stofnana. Slík nálgun getur styrkt enn frekar hlutverk starfsmatskerfisins við markvissa, réttláta og fræðilega þróunar starfa hjá Reykjavíkurborg.

Fields of Study & Subjects

Public Policy and Administration Research Organizational Management and Change Employment Labor and Gender Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis