,,Einmanalegt starf að vera mannauðsstjóri“ Upplifun mannauðsstjórnenda af undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni uppsagna á íslenskum vinnumarkaði

Authors: Alma Guðrún Pálsdóttir 1997-
Cited by: 0

Abstract

Uppsagnir eru meðal erfiðustu verkefna í mannauðsstjórnun þar sem lagaleg, siðferðileg og tilfinningaleg sjónarmið mætast og ákvarðanir geta haft víðtæk áhrif á starfsemina, starfsfólk og vinnustaðamenningu. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á upplifun mannauðsstjórnenda af undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni uppsagna á íslenskum vinnumarkaði, auk þess að skoða hvernig fyrirtæki styðja mannauðsstjórnendur í slíkum ferlum. Rannsóknin er eigindleg og tekin voru hálfopin viðtöl við níu mannauðsstjórnendur sem hafa komið að uppsögnum í störfum sínum. Viðtölin voru hljóðrituð, afrituð og greind með þemagreiningu. Niðurstöður sýna að uppsagnir eru margþætt ferli og að gæði undirbúnings, skýrleiki verkferla og umgjörð framkvæmdar hafa afgerandi áhrif á upplifun þeirra sem missa starf, þeirra sem sitja eftir og þeirra sem bera ábyrgð á ferlinu. Greiningin leiddi í ljós fjögur meginþemu: (1) Undirbúningur uppsagna, þar sem áminningar, frammistöðumat, samvinna við stjórnendur og umgjörð ferlisins skipta máli; (2) Framkvæmd uppsagna, þar sem áhersla er lögð á hnitmiðað og skipulagt uppsagnarviðtal, virðingu og viðbrögð við ólíkum aðstæðum; (3) Afleiðingar og eftirfylgni, þar sem eftirfylgni og stuðningur við uppsagða starfsmenn og þá sem sitja eftir reyndist breytilegur og hafði áhrif á traust og menningu; (4) Einmanalegt starf að vera mannauðsstjóri, þar sem viðmælendur lýstu tilfinningalegu álagi, félagslegri fjarlægð við samstarfsfólk og þörf fyrir formlegan stuðning og úrvinnslu eftir erfið samtöl. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi staðlaðra verkferla, fræðslu og markvissrar eftirfylgni, sem og þess að skipulagsheildir byggi upp stuðningskerfi fyrir mannauðsstjórnendur til að tryggja faglega, sanngjarna og mannúðlega framkvæmd uppsagna.

Fields of Study & Subjects

Occupational Health and Safety Research Workplace Violence and Bullying Workplace Health and Well-being

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis