Siðferði í kvenna forystu. Greining á hvað mótar rökhugsun íslenskra kvenna í stjórnunarstöðum með tilliti til kynslóða og siðferðis

Authors: Inga Rún Svansdóttir 1998-
Cited by: 0

Abstract

Megin markmið rannsóknarinnar var að dýpka skilning á siðferðisviðmiðum íslenskra kvenstjórnenda og reynslu þeirra af siðferðislegum áskorunum í stjórnendastöðum. Einnig var rannsakað hvort viðhorf þeirra og gildi væru að mótast eða breytast með nýjum kynslóðum á vinnumarkaði og nýjum áskorunum sem fylgja nýjum tíðaranda, svo sem aukinni áherslu á sjálfbærni og tilkomu gervigreindar. Rannsóknin byggir á aðferðafræði eigindlega rannsókna. Tekin voru átta hálf-stöðluð viðtöl þar sem fjórar konur voru af X kynslóðinni og fjórar voru af Y kynslóðinni. Sjö viðmælendur gegndu stöðu framkvæmdastjóra og ein forstjóra. Við úrvinnslu og greiningu gagna var notast við aðferðafræði grundaðrar kenningar. Helstu niðurstöður sýna að siðferðisleg sjónarmið íslenskra kvenstjórnenda byggjast á sterkum persónulegum grunngildum, ábyrgri stjórnunarreynslu og umhyggju fyrir fólki. Gildi þeirra mótast af reynslunni, uppeldi og félagslegu umhverfi og endurspegla þau blöndu umhyggjusiðferði, dygðarsiðferðis og nytjastefnu. Þessi siðferðilegi kjarni virðist veita traustan grunn í stjórnunarhlutverki þrátt fyrir síbreytilegt umhverfi. Nýjar áskoranir í rísandi tækni- og samfélagsumhverfi skapar nýtt siðferðislegt landslag í stjórnun. Þar komu fram áherslumunir milli kynslóða, X kynslóðin sýnir meira öryggi og yfirvegun byggða á reynslu, á meðan Y kynslóðin sýnir meiri varúð gagnvart nýrri óvissu og siðferðilegum áhrifum hennar. Samhliða því benda niðurstöður til þess að nýjar áherslur byggi á grunni eldri gilda og að samspil reynslu og nýrrar hugsunar styrki siðfræðilega forystu í nútímastjórnun.

Fields of Study & Subjects

Gender Diversity and Inequality Gender and Feminist Studies Gender Politics and Representation

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis