„Hipphopp er ekki aðeins spegill þess sem er, heldur ætti það einnig að vera speglun þess sem getur orðið": Fjölþætt áhrif hipphopps
Abstract
Í þessari ritgerð er fjallað um hipphopp sem félagslegt og menningarlegt fyrirbæri með áherslu á rapptónlist, sem er eitt af tjáningarformum hipphopps. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á áhrif hipphopps út frá sjónarhorni mannfræðinnar, með tilliti til hugtaka á borð við menningu, andóf, sjálfumleikasköpun og kynþáttahyggju. Ritgerðin byggir á greiningu hugtaka, greiningu á mismunandi mannfræðilegum rannsóknum er varðar hipphopp og greiningu á lagatextum úr völdum hipphopp lögum. Leitast er við að varpa ljósi á það hvernig þetta menningarlega kerfi styður við sjálfsmyndarsköpun einstaklinga, hvernig andóf mótast hjá jaðarsettum hópum og hvernig upplifanir fólks af misrétti kemur fram í tónlistinni. Fræðileg umfjöllun er síðan sett í samhengi við rannsóknirnar og greiningu lagatextanna. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að hipphopp hefur mikil áhrif á sjálfsmyndarsköpun fjölda einstaklinga og veitir þeim rými til tjáningar. Hipphopp virkar sem form andófs sem felur í sér farveg til að gagnrýna hið ráðandi samfélag og ríkjandi valdakerfi. Jafnframt sýna niðurstöður ritgerðarinnar að hipphopp getur verið mikilvægt verkfæri í vitundarvakningu á hinum ýmsu vandamálum innan samfélags og meðal einstaklinga. Þar má sem dæmi nefna kynþáttafordóma og jaðarsetningu einstakra hópa. Hipphopp gegnir virku hlutverki sem menningarlegt afl sem endurspeglar og mótar aðstæður fólks ásamt því að vera vettvangur til þess að bregðast við félagslegu óréttlæti. Ljóst er að hipphopp er fjölþætt, síbreytilegt og flæðandi menningarlegt kerfi sem hefur raunveruleg áhrif á líf fólks.
Fields of Study & Subjects
Music History and Culture
Cultural Identity and Representation
Gender
Feminism
and Media
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis