Tengsl persónulegra gilda við afstöðu til inngöngu Íslands í Evrópusambandið

Authors: Dagmar Linda Steinbergsdóttir 1999-
Cited by: 0

Abstract

Markmið þessarar ritgerðar var að kanna hvernig persónuleg gildi tengjast afstöðu Íslendinga til inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Sérstaklega var skoðað hlutverk alheimshyggju og varfærnisgilda, þar sem alheimshyggja hefur verið tengd stuðningi við alþjóðlegt samstarf en varfærni hefur verið tengd andstöðu við samfélagslegar breytingar. Með rannsókninni var leitast við að skýra hvort sálfræðilegir þættir geti varpað ljósi á þann ágreining sem einkennir umræðu um aðild að Evrópusambandinu. Rannsóknin byggir á gildakenningu Schwartz og notar fyrirliggjandi gögn úr European Social Survey sem lögð var fyrir á Íslandi árið 2024. Niðurstöður sýna að alheimshyggja tengist auknum stuðningi við inngöngu Íslands í Evrópusambandið en varfærnisgildi tengjast andstöðu við aðild. Þessi tengsl skýrast að hluta til af viðhorfum til innflytjenda og tilfinningalegum tengslum við Ísland og Evrópu. Rannsóknin bendir til þess að afstaða til aðildar endurspegli ekki eingöngu efnahagsleg rök eða mat á staðreyndum heldur einnig persónulegt gildismat fólks og forgangsröðun markmiða. Slíkur skilningur getur stuðlað að dýpri innsýn í pólitískan ágreining og lagt grunn að málefnalegri og yfirvegaðri umræðu um aðild að Evrópusambandinu auk þess að stuðla að bættri upplýsingagjöf.

Fields of Study & Subjects

Cultural Differences and Values Social and Intergroup Psychology European Cultural and National Identity

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis